ESB elítan virðist fyrst nú vera að fatta að Brexit gæti gerst með ákvörðun breskra kjósenda á morgun.

Það mætti halda að evrukratar í Brussel séu að vakana upp við vondan draum. Þeir virðast fyrst vera að átta sig á því núna að svo gæti farið að Bretar yfirgefi ESB og í annan stað að löggjöf og starfsaðferðir ESB eru meingallaðar og þurfi endurbóta við.

Í viðtengdri grein segir:

Krossa putt­ana í Brus­sel

Í Brus­sel segja menn hins veg­ar að burt­séð frá því hvernig at­kvæði falla á morg­un, þá sé þörf á end­ur­skoðun á Evr­ópu­sam­band­inu. Ráðherr­aráð Evr­ópu­sam­bands­ins og yf­ir­menn í höfuðstöðvum NATO eru engu að síður sagðir krossa putt­ana um að Bret­ar kjósi að vera áfram í ESB.

Don­ald Tusk, for­seti leiðtogaráðs Evr­ópu­sam­bands­ins, hef­ur varað við því að yf­ir­gefi Bret­ar ESB valdi það ekki bara skjálfta í sam­starfi ESB-ríkja, held­ur kunni það einnig að vera upp­hafið á endi­lok­um vest­ræns stjórn­ar­sam­starfs. Tusk ít­rekaði einnig að hvernig sem at­kvæði falli, þá sé þörf á end­ur­bót­um og löng­um umræðum um framtíðar­hlut­verk ESB.

Af hverju eru menn fyrst nú, þegar komið er að þjóðaratkvæðagreiðslu Breta um hvort þeir eigi að vera eða yfirgefa ESB, að tala um að gera endurbætur á sambandinu?  Ef þeim er virkilega alvara með þessum yfirlýsingum væru þeir löngu farnir af stað í slíkt ferli og hefðu sýnt fram á raunverulegan vilja til að bæta sambandið.  En getur það verið að valdagræðgin hjá þessum mönnum sé og hafi verið viljanum til endurbóta sterkari? 

Þeir í Brussel geta krossað puttana fram í rauðan dauðan, ég er viss um að ekkert mun breytast hvort heldur Bretar verði áfram í ESB eða ákveði að yfirgefa það.  Það hentar elítunni ekki að breyta neinu þegar kemur að ákvörðunartökum innan sambandsins, þeir vilja ráða og nota sýnar aðferðir til þess hvort heldur almennum kjósendum líki betur eða verr.


mbl.is Allir óttast Brexit nema Pútín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. júní 2016

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 162482

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband