12.9.2024 | 15:25
Þetta frumvarp verður að víkja, Þórdís verður að hafa hag þjóðarinnar í fyrirrúmi.
Ef Þórdís ætlar þessu frumvarpi í gegnum Alþingi er ljóst að næstu kosningar verða óþarfar. Höfum við þingheim sem þorir að segja NEI við þessari aðför að íslensku réttlæti??? Ef ekki eru þeir búnir að jarðsetja atvinnugrein sína og það að fullu.
Takist Þórdísi ekki að koma þessu frumvarpi í gegnum þingið, er úti um þingsetu hennar.
Þórdís boðar eitt frumvarp: Bókun 35 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Facebook
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
- axelaxelsson
- flinston
- baldvinj
- bergthorolason
- biggilofts
- skinogskurir
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- gattin
- contact
- einarbb
- eeelle
- emilkr
- ea
- fannarh
- lillo
- gesturgudjonsson
- gudbjorng
- zumann
- tilveran-i-esb
- coke
- gunnlauguri
- gustafskulason
- conspiracy
- halldorjonsson
- hallurhallsson
- haddi9001
- maeglika
- harhar33
- bordeyri
- heimssyn
- don
- hordurvald
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- thjodfylking
- astromix
- jakobk
- johanneliasson
- johann
- islandsfengur
- jonsullenberger
- jonl
- bassinn
- prakkarinn
- thjodarskutan
- kiddikef
- krist
- kristjan9
- lifsrettur
- loncexter
- magnusg
- marinogn
- mofi
- olof
- pallvil
- iceland
- regu
- undirborginni
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- duddi9
- sjonsson
- thruman
- athena
- stebbifr
- stendors
- valdimarjohannesson
- skolli
- viktor
- villidenni
- postdoc
- thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 2
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 165622
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Tek undir allt í þínum pistli. Þórdís og sumir í Sjálfstæðisflokknum eru að greiða leiðina inní ESB! Nær hefði verið að auka sjálfstæðið með því að draga úr regluverkinu! Þetta má ekki verða samþykkt.
Ingólfur Sigurðsson, 12.9.2024 kl. 15:52
Þakka þér Ingólfur, við erum sammála.
Tómas Ibsen Halldórsson, 12.9.2024 kl. 15:57
Við erum í EES svo það verður að innleiða þessa tilskipun, Tómas. Annars lendum við í vondum málum. Ef við ætlum að losna við regluverkið verður að segja samningnum upp eða sækja um endurskoðun. Að mínu viti ætti að sækja um að samningnum yrði breytt í venjulegan viðskiptasamning.
Jósef Smári Ásmundsson, 12.9.2024 kl. 16:25
Fólk vill lækka verðbólguna. Þetta er góð leið til að sökkva landinu í staðnað ESB viðskiptaumhverfi og eilífan samdrátt. Þessi kona ætti auðvitað ekki að koma nálægt landsmálum.
Rúnar Már Bragason, 12.9.2024 kl. 20:32
Þakka ykkur Jósef og Rúnar fyrir innlit ykkar. Hvað EES varðar voru tildrög þess samnings viðskiptalegs eðlis en ekki sem inngangur í ESB. ESB aðild Íslands er ekki það sem þjóðin hefur samþykkt á nokkurn hátt og ætti því ekki að taka upp íþyngjandi reglur sem þjóðin hefur ekki fengið að ræða um.
Tómas Ibsen Halldórsson, 12.9.2024 kl. 23:25
Arnar Þór Jónsson fyrrum forsetaframbjóðandi bauð sig fram m.a. til að geta sem Forseti Íslands, neitað að undirrita lög eins og bókun 35, og setja þau í þjóðaratkvæði.
En vænta má að Alþingi í andstöðu við þjóðarhag, muni samþykja ólög sem þessi og Forsetinn sem situr muni undirrita þau athugasemdalaust.
Guðmundur Örn Ragnarsson, 13.9.2024 kl. 00:12
Aðfarir voru lögleiddar á Íslandi löngu áður en EES samningurinn kom til sögunnar.
Guðmundur Ásgeirsson, 13.9.2024 kl. 00:36
En í þessum " Viðskiptasamningi" er ákvæði um að Ísland eigi að taka upp reglur ESB.Það getur ekki verið eðlilegt í viðskiptasamningi . En eins og staðan er í dag verður Ísland að standa við samninginn og innleyða þessi lög. Það er hinn napri veruleiki. Ef við gerum það ekki eða forsetinn setur þetta í þjóðaratkvæði sem síðan fellir kostar það lögsókn frá ESA og ísland verður í heldur verri málum en áður.
Jósef Smári Ásmundsson, 13.9.2024 kl. 07:51
Átti að vera innleiða, ekki innleyða. Bið forláts.
Jósef Smári Ásmundsson, 13.9.2024 kl. 07:53
Ég er hræddur um að Þórdís Kolbrún setji þetta mál fram sem ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGU (sem ég vil meina að sé stjórnarkrárbrot) til þess að komast hjá afskiptum forseta.........
Jóhann Elíasson, 13.9.2024 kl. 12:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.