3.1.2024 | 12:45
Arnar Þór Jónsson næsti forseti Íslenska lýðveldisins.
Mikið var ég ánægður með yfirlýsingu og ákvörðun Arnars Þórs Jónssonar að vilja bjóða sig fram sem forseti Íslands. Arnar Þór er verðugur kandídat og gæti orðið öflugur í því krefjandi starfi sem stefnir í að verði á komandi missirum og árum.
Við þurfum einmitt á slíkum manni sem Arnar Þór hefur að geyma til að sinna þessu mikilvæga embætti á næstu árum. Arnar Þór er vel að sér þegar kemur að túlkun stjórnarskrárinnar og þekkir vel til þeirra laga sem í gildi eru. Hann hefur rétta sýn á hið mannlega eðli og trú á því sem okkur sem Íslendingum er til heilla.
Ég styð Arnar Þór Jónsson heilshugar í baráttunni um Bessastaði. Megi honum og fjölskyldu hans vegna vel á komandi mánuðum og árum.
Arnar Þór býður sig fram til forseta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Trúmál og siðferði | Facebook
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
- axelaxelsson
- flinston
- baldvinj
- bergthorolason
- biggilofts
- skinogskurir
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- gattin
- contact
- einarbb
- eeelle
- emilkr
- ea
- fannarh
- lillo
- gesturgudjonsson
- gudbjorng
- zumann
- tilveran-i-esb
- coke
- gunnlauguri
- gustafskulason
- conspiracy
- halldorjonsson
- hallurhallsson
- haddi9001
- maeglika
- harhar33
- bordeyri
- heimssyn
- don
- hordurvald
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- thjodfylking
- astromix
- jakobk
- johanneliasson
- johann
- islandsfengur
- jonsullenberger
- jonl
- bassinn
- prakkarinn
- thjodarskutan
- kiddikef
- krist
- kristjan9
- lifsrettur
- loncexter
- magnusg
- marinogn
- mofi
- olof
- pallvil
- iceland
- regu
- undirborginni
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- duddi9
- sjonsson
- thruman
- athena
- stebbifr
- stendors
- valdimarjohannesson
- skolli
- viktor
- villidenni
- postdoc
- thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 165528
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll. Oftast er það nú þannig, að þeir sem hafa getu til að gera eitthvað virkilega gott fyrir land og þjóð, verða fyrir hörðustu mótspyrnunni. T.d Jesú !
Vonum samt að Arnar komist sem lengst, og kynni umheiminn fyrir Kristinni þjóð með merka sögu og menn.
En einhverjir spádómar segja að kona verði næst á Bessatöðum.
Gleðilegt ár.
Loncexter, 3.1.2024 kl. 17:43
Tek heilshugar undir með þér ég er svo viss um að þarna sé maðurinn sem Íslendinga vantar á Bessastaði. En taktu eftir því að "hýenurnar og hælbítarnir" eru strax komnir af stað til að sverta hann (samanber Helga Hrafn Jónsson og Björn Bjarnason. En hvað skilja þeir eftir sig????)
Jóhann Elíasson, 3.1.2024 kl. 17:51
Sæll Loncexter og gleðilegt ár.
Ég hef ekki heyrt af neinum spádómi um að kona verði næsti húsráðandi að Bessastöðum, en við þurfum einstakling sem þorir og kann að biðja GUÐ um að blessa Ísland eins og Geir Haarde gerði.
Tómas Ibsen Halldórsson, 3.1.2024 kl. 17:59
Jóhann það er einhvernvegin svo að þegar von er á mönnum sem hafa erindi í veigamikil embætti þá eru alltaf einhverjir sem fara af stað til að sverta viðkomandi og reyna að finna eitthvað til að klína á hann. Við getum verið nokkuð vissir um það að þetta er bara rétt byrjunin á slíkri vegferð. En það segir mér bara það að sá sem verður fyrir slíkum árásum er einmitt sá aðili sem best er til þess fallinn að fylla það embætti, ill öfl vilja alltaf eyðileggja það sem má verða til farsældar.
Tómas Ibsen Halldórsson, 3.1.2024 kl. 18:07
Gott er að sjá Guð blessa íslenska þjóð.
En hefur Guð nokkuð áhuga á að blessa þjóð/ir sem vilja yfir höfuð ekkert með Kristni að gera ?
Guð getur komið íslendingum úr hvaða krísu sem er, ef lýðurinn kærir sig um að fylgja orðum hans.
Flestir íslendingar spá ekkert í boðorðin þessi misserin, og þeir fáu sem það gera misskilja fjórða boðorðið hrapalega sem er mjög alvarlegt mál !
Loncexter, 3.1.2024 kl. 18:31
Að minnsta kosti hafa mörg okkar Íslendinga beðið guð af öllu hjarta.
Helga Kristjánsdóttir, 3.1.2024 kl. 19:04
Já...
Það eina sem ég get sagt er: fylgist vel með þegar talið er úr kössunum.
Seinustu kosningar fóru nefnilega nokkuð grunsamlega: https://is.wikipedia.org/wiki/Forsetakosningar_%C3%A1_%C3%8Dslandi_2020
"Guðni var sigurvegari kosninganna og hlaut hann 89,4% greiddra atvæða. Kjörsókn var tæp 66,9%."
89% já...
Af MBL: https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/06/28/lokatolur_liggja_fyrir_gudni_faer_92_2_prosent/
"Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hlaut 92,2%"
Spúkí.
Hver fylgist með þessu?
Ásgrímur Hartmannsson, 3.1.2024 kl. 19:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.