Léleg kjörsókn!!!

Ef miðað er við kjörsókn víða í Bandaríkjunum við forsetakosningarnar í fyrra, þá er kjörsókn hér á landi verulega léleg.  Í nokkrum borgum suður Kaliforníu, þar sem Demókratar eru öflugir, fór kjörsókn vel yfir 100%.  Í San Diago fór kjörsókn t.d. í 135%, geri aðrir betur. Í Los Angeles, San Francisco, San Jose og víðar var kjörsókn yfir 100%.  Þá var kjörsókn á nokkrum stöðum í Flórída meiri en fjöldi þeirra sem á kjörskrá voru.

Ekki nema vona að Hillary Clinton hafi fengið fleiri atkvæði en Donald Trump. 


mbl.is Kjörsókn vænkast um 2% milli ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Maður sér þetta nú bara fyrir sér, Tómas." nú koma síðustu tölur úr Suður Kaliforníu. Talin hafa verið 20000000 atkvæða sem er 135% kosningabærra manna. Atkvæði skiptast þannig". Já það er ekki ofsagt um heimskuna hjá bandaríkjamönnum cool

Jósef Smári Ásmundsson, 30.10.2017 kl. 12:38

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Vel athugað hjá þér, Tómas! Allt var nú reynt!

Jón Valur Jensson, 30.10.2017 kl. 13:30

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þakka ykkur innlitið Jósef Smári og Jón Valur.

Eitt og annað er að koma upp á yfirborðið varðandi kosningarnar vestra og Rússasamsærið sem MSM [Main Stream Media] forðast að fjalla um, vegna þess að það kemur Demókrötum og einkum Hillary Clinton illa.

Tómas Ibsen Halldórsson, 30.10.2017 kl. 14:01

4 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Fannstu þetta á netinu, Tómas?cool

Jósef Smári Ásmundsson, 30.10.2017 kl. 14:50

5 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Meðal annars Jósef.

Tómas Ibsen Halldórsson, 30.10.2017 kl. 15:17

6 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Og þér finnst þetta ekkert einum of augljóst til að kosningastjórnirnar komi ekki auga á það? Er þetta kannski í rannsókn hjá þarlendum yfirvöldum?

Jósef Smári Ásmundsson, 30.10.2017 kl. 16:38

7 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Kosningakerfið í Bandaríkjunum er um margt ólíkt okkar. Svo virðist sem menn geti komið oftar ein einu sinni þar sem ekki er merkt við eins og hjá okkur. Reyndar hefur hvert fylki sínar eigin reglur og ber ábyrgð á utanumhaldi hjá sér. Einhverstaðar er verið að taka á þessum málum, en þar sem Demókratar eru í miklum meirihluta virðist fara lítið  fyrir því.

Í sumum fylkjum fengu ólöglegir innflytjendur að kjósa. Það var gert að áeggjan Obama þáverandi forseta. Á einum stað var elsti kjósandinn meira 130ára að aldri, hann mun hafa verið látinn fyrir löngu síðan. Sumstaðar voru löngulátnir einstaklingar að kjósa skv. heimildum.

Það er ekki á hendi alríkisins að fara ofan í saumana og ákæra, þó er til nefnd á vegum þingsins sem á að hafa eftirlit með svona málum, en valdsvið takmarkað. Óumdeilt er að Trump vann kosningarnar, þó svo að flestir Demókratar og nokkrir Repúblikanar eigi erfitt með að kyngja því.

Enginn Demókrati átti von á því að HRC myndi tapa fyrir Trump, það kom þeim í opna skjöldu og nú leitar Hillary að sökudólgum allsstaðar annarsstaðar en hjá sjálfri sér.

Tómas Ibsen Halldórsson, 30.10.2017 kl. 20:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 85
  • Sl. viku: 127
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 91
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband