26.10.2015 | 16:38
Eiga samkynhneigðir alltaf að geta komið sínu fram óháð skoðunum annarra?
Er það virkilega svo að samkynhneigðir vilja endilega sækja þjónustu til þeirra sem samvisku sinnar vegna er á móti skapi að veita slíka þjónustu sem þeir fara fram á? Er það kannski bara til að ögra? Ögra kirkjunni og þó einkum þeim sem vilja ekki veita samkynhneigðum slíka þjónustu? Eru samkynhneigðir í raun að reyna að koma upp sundrungarástandi á meðal þjóðarinnar? Af hverju hafa þeir einir rétt til að hlustað sé á þá og farið eftir þeirra duttlungum? Af hverju mega aðrir ekki hafa aðra skoðun og lifa og starfa eftir því sem þeim þykir best og í samræmi við samvisku þeirra?
Ég veit ekki betur en samkynhneigðir geti hagað málum sínum eins og þeim sýnist. Ekki eru kristnir, eða aðrir sem hafa þá skoðun að samkynhneigð sé óeðlileg, komnir inn á gafl samkynhneigðra til að varna þeim að fara sínu fram. En samkynhneigðir og þeir sem fylgja þeim að málum vilja ráðskast með aðra sem eru þeim ekki sammála.
Það er óþolandi að prestar þjóðkirkjunnar skuli ganga fram fyrir skjöldu og vilja þvinga fram vilja samkynhneigðra af hreinni meðvirkni eða til að afla sér vinsælda á meðal frjálslyndra og annarra öfgahópa.
Eru prestar ekki í því starfi til að þjóna Guðs Orði? að boða fagnaðarerindið, sem kallar eftir fylgni við Drottinn og fráhvarf frá synd? eða halda menn að Jesús Kristur hafi komið og frelsað mannkynið frá syndum þeirra svo þeir gætu haldið áfram í synd sinni? Vita prestarnir ekki að laun syndarinnar er dauði (eilífur aðskilnaður frá Guði)?
Prestar munu á efsta degi þurfa að standa skil á þeim boðskap sem þeir flytja. Ef þeir þekkja ekki Guðs Orð eða vilja Drottins ráðlegg ég þeim að leita Hans vilja, því að Guðs vegir eru ekki okkar vegir og okkar vegir eru ekki Guðs vegir.
Jesaja 55.kafli vers 6-11
6Leitið Drottins, meðan hann er að finna, kallið á hann, meðan hann er nálægur!
7Hinn óguðlegi láti af breytni sinni og illvirkinn af vélráðum sínum og snúi sér til Drottins, þá mun hann miskunna honum, til Guðs vors, því að hann fyrirgefur ríkulega.
8Já, mínar hugsanir eru ekki yðar hugsanir, og yðar vegir ekki mínir vegir - segir Drottinn.
9Heldur svo miklu sem himinninn er hærri en jörðin, svo miklu hærri eru mínir vegir yðar vegum og mínar hugsanir yðar hugsunum.
10Því eins og regn og snjór fellur af himni ofan og hverfur eigi þangað aftur, fyrr en það hefir vökvað jörðina, gjört hana frjósama og gróandi og gefið sáðmanninum sæði og brauð þeim er eta, 11eins er því farið með mitt orð, það er útgengur af mínum munni: Það hverfur ekki aftur til mín við svo búið, eigi fyrr en það hefir framkvæmt það, sem mér vel líkar, og komið því til vegar, er ég fól því að framkvæma.
Guð hefur gefið okkur sitt Orð til þess að boða það og það er hlutverk prestanna, ekki að hlaupa eftir duttlungum sérhagsmuna hópa sem vilja gera lítið úr Orði Guðs.
![]() |
Prestar vilja afnema samviskufrelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
flinston
-
baldvinj
-
bergthorolason
-
biggilofts
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
gattin
-
contact
-
einarbb
-
eeelle
-
emilkr
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gudbjorng
-
zumann
-
tilveran-i-esb
-
coke
-
gunnlauguri
-
gustafskulason
-
conspiracy
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
haddi9001
-
maeglika
-
harhar33
-
bordeyri
-
heimssyn
-
don
-
hordurvald
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
jakobk
-
johanneliasson
-
johann
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonl
-
bassinn
-
prakkarinn
-
thjodarskutan
-
kiddikef
-
krist
-
kristjan9
-
lifsrettur
-
loncexter
-
magnusg
-
marinogn
-
mofi
-
olof
-
pallvil
-
iceland
-
regu
-
undirborginni
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
duddi9
-
sjonsson
-
thruman
-
athena
-
stebbifr
-
stendors
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
viktor
-
villidenni
-
postdoc
-
thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 167480
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar