Vandi evrunar er vandi alheimsins

Efnahagskreppan á heimsvísu á að stórum hluta til rætur að rekja til evrunnar. 

Vandi evrunnar er sá að ólík lönd með ólíkan efnahagsbakgrunn eru að myndast við að búa til efnahagssvæði og blanda það ólíkum grunni.  Það er eins og að blanda saman olíu og vatni og ætla sér að fá út úr því öflugra eldsneyti, en það vita allir að slíkt gengur ekki upp.

Gunnur efnahagskerfis S-Evrópu er gerólíkur efnahagskerfi N-Evrópu.  Efnahagskerfi N-Evrópu hefur byggt á öflugri grunni en þeirra í S-Evrópu.  Þar af leiðandi verður vandi þeirra í suðri mikill og óviðráðanlegur þar sem í grunninn vantar það sem sameina á efnahag þeirra við það sem gerist í norðri. 

Löndin í S-Evrópu hafa verið svipt þeim tækjum og tólum sem til þarf til að aðlaga efnahagskerfi þeirra að breyttum aðstæðum.  Þar af leiðandi verður kreppan í þessum löndum viðloðandi, sama hvaða kröfur verða lagðar á þessar þjóðir.  Það verður ekki fyrr en þær taka upp sinn eigin gjaldmiðil með þeim tækjum og tólum sem til þarf til að aðlaga efnahag þeirra að þeim raunveruleika sem þær búa við.  Evran mun engu breyta þar um.

Ekki geri ég ráð fyrir því að Þjóðverjar eða aðrar þjóðir í norðurhluta Evrópu vilji aðlaga efnahag sinn að þeim raunveruleika sem suðurlönd álfunnar búa við.

Á meðan þessu heldur fram mun efnahagskreppan á heimsvísu halda áfram að dýpka.

 


mbl.is Rísandi hagkerfi í vanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 167388

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband