Þeir vilja ekki sann­gjörn rétt­ar­höld

Í Fulltrúadeild Bandaríska þingsins eru Demókratar í meirihluta. Þar stjórnaði Adam Schiff nefnd þingsins sem "rannsakaði" brot Donalds Trumps forseta. Kölluð voru mörg vitni sem áttu að sanna glæpi forsetans. Vitnin sem kölluð voru til voru þau sem Demókratar vildu fá, Repúblikanar fengu ekki að kalla til vitni, Adam Schiff neitaði þeim um þann rétt þeirra.Í nokkrum tilfella bannaði Schiff vitnum að svara spurningum Repúblikana.

Nefnd Schiffs átti sem sagt að rannsaka spillingu Trumps og leggja fram sannanir fyrir Öldungadeildina þannig að hægt væri að ákæra forsetann án frekari vitnaleiðslu. Nú er svo komið að Demókratar sjá að málflutningur þeirra er veikur og vilja því kalla til enn fleiri vitni, þeir vilja teygja ferlið og toga því að að lokum munu allir sjá hversu veikur málstaður þeirra er.

Schiff og fleiri Demókratar voru búnir að ákveða að kæra Trump áður en hann var svarinn inn í embættið, þeir fóru ekki leynt með þá ákvörðun sína. Demókratar reyna að tína allt til sem þeir mögulega geta til að kasta rýrð á forsetann. Þeir hafa aldrei getað sætt sig við að Hillary skyldi tapa fyrir Trump í kosningunum 2016.

Þegar Schiff og aðrir Demókratar væna Repúblikana um ósanngjörn réttarhöld ættu þeir að líta í spegil, þar myndu þeir sjá hina ósanngjörnu.

Demókrataflokkurinn er gersamlega búinn að gera svo rækilega á sig að það mun ef að líkum lætur valda þeim miklu tjóni í kosningunum í nóvember n.k.


mbl.is „Þeir vilja ekki sanngjörn réttarhöld“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. janúar 2020

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 162164

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband