Umfjöllun BBC um ofbeldi Hamas á Gaza

Merkilegt er að BBC skuli fjalla um mótmæli almennings á Gaza gegn Hamas og viðbrögðum Hamasliða gegn eigin fólki. Staðreyndin er sú að Hamas er alveg sama um hag hins almenna borgara, reyndar hafa þeir talið það sér til tekna í baráttu sinni við að koma höggi á Ísrael að almennir borgarar á Gaza hafi það sem verst. Á sama tíma lifa forystumenn Hamas í vellystingum og reyndar einnig forystumenn Fatah.

Almennir borgarar eru búnir að fá sig fullsadda af yfirgangi Hamas og Fatah, fólkið vill frið og geta lifað í sátt og samlyndi við náunga sinn.

Málið er að almenningur fær engu ráðið á Gaza eða Vesturbakkanum, þeir verða bara að lúta vilja þeirra sem halda í völdin og eira engum. Ef fólkið fengi að kjósa sér leiðtoga gæti hugsast að friður kæmist á þar sem hryðjuverk yrðu flautuð af og íbúarnir fengju að lifa í sátt við nágrana sína, Ísrael. Því miður er ekki von á friði meðan Hamas og Fatah stjórna öllu með harðri hendi og ofbeldi ekki eingöngu í garð Ísraela heldur síns eigin fólks.

Því fagna ég því að BBC skuli loks fjalla um ástandið á Gaza með þeim hætti sem þeir gera nú, en sanngjarna umfjöllun hefur skort hjá BBC eins og RUV.

 

Palestínskur maður gengur fram hjá veggmynd í bænum Rafah á ...
Palestínsk­ur maður geng­ur fram hjá vegg­mynd í bæn­um Rafah á Gaza-strönd­inni. Ham­as-liðar eru sakaðir um harðræði gegn mót­mæl­end­um und­an­farna daga. AFP

 

 


mbl.is Hamas mótmælt á Gaza-ströndinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. mars 2019

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband