Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hvað gerðist eftir mótmælin í Kína s.l. haust.

Skildi þetta vera eitthvað sem vestræn stjórnvöld íhuga að gera???


Er Kínverski kommúnistaflokkurinn með Xi í broddi fylkingar að drepa stóran hluta af kínversku þjóðinni ?????

Það er óhugnanlegt sem er að gerast í Kína. Sumir er að átta sig á lyginni sem stjórnvöld beita gegn almenningi, en það virðist nokkuð ljóst að Xi og kommúnistaflokkurinn eru að fækka fólki viljandi. Það eru ekki eingöngu gamalt fólk sem er að hrynja niður heldur einnig ungt og heilbrigt fólk sem veikist skyndilega og deyr á skömmum tíma.

Eigum við eftir að sjá þetta gerast hér á vesturlöngum??? Því miður tel ég að svo muni verða. Davos klíkan, Vilhjálmur Hlið o.fl. stefna að því að fækka fólki, þeir fara ekki í felur með þær áætlanir sínar.

 

Hér er svo annað óhugnanlegt myndband frá Kína.

Ekki kæmi á óvart ef Y-T- lokaði á þessi myndbönd, sjáum til hvort það gerist.


Hluti af því sem er að gerast í Póllandi og Úkraínu, það sem fjölmiðlar eru ekki að fjalla um.

Það er ekki allt sem sýnist, sumt sem ekki má segja frá, en það sem enginn má vita finnur leið til að upplýsast.


Dóu skyndilega!!!

Þegar við heyrum af átökunum í Úkraínu og fjölda almennra borgara myrta á hroðalegan hátt eða hryllileg ofbeldi sem fólk verður fyrir, hugsum við "hvert stefnir heimurinn", okkur er um og ó okkur er ekki sama, hryllingur.

En hvernig má það vera að okkur þykir ekkert að því að ofurríkt fólk haldið hreinni illsku hafa hafið stríð gegn jarðarbúum þar sem gríðarlegur fjöldi fólks hefur dáið að ástæðulausu, börn deyja í móðurlífi eða jafnvel í örmum móður sinnar og hundruð þúsunda ef ekki milljónir hafa hlotið alvarlegan líkamlegan skaða af gjörðum siðspilltra ofurríkra aðila sem telja okkur almenna borgara vera fyrir sér og spilla jörðinni fyrir þeim????

Af hverju erum við svo blind að sjá ekki í gegnum blekkingarnar sem hafa dunið yfir okkur nú í nærri þrjú ár??????

Hér fyrir neðan er vefslóð á myndband þar sem fjallað um skyndilegan dauða - DIED SUDDENLY. Myndband þetta er ekki fyrir börn að horfa á og jafnvel ekki fyrir viðkvæma. En fólk þarf að horfa á og hlusta með opnum huga til að gera sér grein fyrir því sem er í gangi.

Þar sem þetta myndband fæst ekki sýnt á youtube þá þarf að afrita vefslóðina og opna í nýjum glugga.

https://rumble.com/v1wac7i-world-premier-died-suddenly.html

 

 

 


Þessi kona, Tulsi Gabbard, var fulltrúadeildar þingmaður Demókrata fyrir Hawaii . . .

. . . þar til hún sóttist eftir útnefningu Demókrata sem forsetaefni þeirra í kosningunum 2020. Það var Joe Biden sem náði útnefningu flokksins en Tulsi ásamt fleirum sem sóttust eftir útnefningu heltist úr lestinni fljótlega í útnefningar ferlinu.

Hér er Tulsi Gabbard í meðfylgjandi myndbandi að fjalla um flokkinn sinn sem hún barðist fyrir og var fulltrúi fyrir í Fulltrúadeildinni.

Þess skal getið að Tulsi hefur nú sagt sig frá Demókrataflokknum, ekki vegna þess að hún tapaði fyrir Joe Biden heldur vegna þess að flokkurinn sem hún starfaði með og barðist fyrir er ekki lengur sá sami, heldur hafa gildi flokksins breyst á þann veg sem henni er ekki að skapi.

Hlustið á það sem hún hefur að segja um stefnu flokksins í dag og þau gildi sem hann stendur fyrir sem er gjörsamlega andstætt því sem hún barðist fyrir.

 


Hvernig fyndist þér að lifa á pöddum, en hafa ekki aðgang að þeirri fæðu sem þú hefur vanist hingað til ???

Ef ykkur finnst Covid hafi tekið á líkama, sál og allt annað í lífinu, hvað fyndist ykkur um að hafa pöddur á matarborðinu í allar máltíðir alla daga vikunnar allt árið um kring??????????

Þetta er það sem World Economic Forum (WEF) er í alvörunni að tala um á sama tíma og þeir tala um "The Great Reset" (Endurræsinguna miklu), því þeir vilja eyða búfénaði öllum, nema því sem þeir sjálfir vilja njóta, og ætla öllum öðrum að lifa á skordýrum.

Nú hafa Bresk stjórnvöld um nokkurt skeið verið að gera tilraunir með skordýrafæði fyrir fátæk börn í Afríku. Börnin eru tilraunarverkefni svo hægt sé að sjá hvaða áhrif slík fæða muni hafa á mannfólkið yfir höfuð. Afríkubúar og einkum börnin eru tilraunardýr í augum elítunnar, en meiningin er að koma öllum á bragðið að lifa á pöddum, fyrir utan elítunnar sjálfrar.

Þetta hafa þeir hjá WEF lýst yfir með Klaus Schwab og Bill Gates í fararbroddi.

Sjá upplýsingar um tilraunaverkefnið í Afríku á myndbandinu hér fyrir neðan.

 

The U.K. government is experimenting on African children by feeding them a bug-based diet


Öryggi þjóðarinnar á viðsjárverðum tímum.

Gott er að starfshópur hafi fjallað um lífsafkomu þjóðarinnar á hættutímum og lagt til að neyðarbirgðir yrðu tryggðar á hættutímum.

Nú er vá fyrir dyrum, fjölmargir sérfræðingar hafa komið fram á sjónarsviðið og fjallað um yfirvofandi matvælaskort þar sem uppskerubrestur er víða og eins vegna þess að bændur víðsvegar um heim hafa ekki séð hag sinn í að sá í akra sína eða viðhalda bústofni sínum vegna yfirþyrmandi kostnaðar á áburðum og fóðri fyrir nautgripi sína eða fé.

Lengi vel hafa íslenskir bændur verið þyrnar í augum krata og annarra sem viljað hafa bændastéttina feiga en viljað þess í stað að þjóðin reiði sig á innflutning matvæla frá Evrópu. Nú er svo komið að í Hollandi, sem er annað stærsta útflutningsþjóð á matvælum á heimsvísu, er allt í upplausn þar sem stjórnvöld eru að leggja stein í götu bænda, þau vilja losna við stóran hluta bænda og hefta framleiðslu þeirra til útflutnings.

Við þurfum að hlúa betur að íslenskum bændum og nú er svo komið að þjóðaröryggisráðið sem téður starfshópur vann fyrir leggi nú áherslu á og hafi snör handtök til að afla birgða fyrir veturinn og næsta ár svo þjóðin muni geta haldið lífi á næstu missirum. Líf okkar liggur við.

Menn óttast hungursneið víðsvegar um heiminn á vetri komanda og að fjöldi manna muni farast úr hungri og kulda þar sem víða mun reynast erfitt að halda híbýlum nægilega heitum vegna skorts á gasi og rafmagni, auk þess sem hitunarkostnaður er og verður ískyggilega hár og erfitt fyrir fólk einkum eldri borgara að greiða kostnað sem hlýst af við að halda á sér hita.

Síðustu misseri hafa komið fram á sjónarsviðið hópur ofurríkra aðila sem leynt og ljóst í mörg ár hafa verið að vinna að því að fækka fólki á jörðinni. Þessir aðilar skeyta ekki um velferð almennings líf þeirra eða heilsu, þeir eru fyrst og fremst að hugsa um sjálfa sig og þá sem standa þeim næst.

Þetta eru aðilar sem eiga lyfjafyrirtækin, þeir hafa verið að kaupa upp jarðir vestan hafs, jarðirnar eru ekki nýttar til matvælaframleiðslu. Þessir aðilar eiga og stjórna stærstu fjölmiðlum, þeir eru með stjórnvöld og stjórnmálamenn í vasanum, stjórna samfélagsmiðlunum, stjórna umræðunni um Covid, loftslagsmálin, fjármálaheiminn, flugfélög, skipafélög, framleiðslu allskonar og margt fleira sem við notum dagsdaglega.

Þess ber einnig að geta að fjöldi verksmiðja sem framleiða matvæli hafa á síðustu mánuðum orðið eldi að bráð. Farið er að bera á skorti á matvælum víða, vestanhafs eru aðilar að benda á þetta og á stórhækkun matvælaverðs, það er þegar farið að bíta í víða.

Ef við sem þjóð viljum lifa af þurfum við að hugsa vel um þá hluti sem starfshópurinn um þjóðaröryggi leggur til og þurfum að gera það ekki seinna en núna. Katrín forsætis ætti að vera kunnugt um það sem hér hefur verið reifað þar sem hún hefur sótt ráðstefnur þessara ofurríku og ætti að vera kunnugt um áform þeirra. Hafi hún raunverulega hag þjóðarinnar að leiðarljósi mun hún leggja til atlögu strax og vonandi hefur hún nú þegar lagt á ráðin við að tryggja öryggi landsmanna.

Ég segi eins og Geir H.Haarde sagði. 

GUÐ BLESSI ÍSLAND og ég bæti við OG ÍSLENSKU ÞJÓÐINA.


mbl.is Á að tryggja lífsafkomu þjóðarinnar á hættutímum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem enginn má tala um og enginn vill vita af. Hefur þú heyrt ???

Hér eru tvö myndbönd, meira að segja á youtube, þar sem fjallað er um mál sem enginn vill vita af og ekki má tala um, hvort um sig um ellefu mínútna langt.

Sumir tala um samsæriskenningar, en erum við að horfa uppá samsæri glópalistana gegn mannkyninu, þ.e.a.s. gegn þér og mér?????

Illskan í heiminum dó ekki út með Hitler, Stalín, Maó o.fl. Siðblint fólk er á fullri ferð að hlaða undir sjálfa sig á kostnað okkar hinna, þeir vilja stjórna heiminum eftir sínum vilja. Fólk sem aldrei hefur hlotið kosningu til að stjórna er með stjórnvöld og embættismenn í vasanum, íhugið það !!!!!

 


Hugrakkir læknar í Ástralíu funduðu um síðastliðna helgi, þeir lögðu starfsframa sinn að veði.

Læknar í Ástralíu og víðar um allan heim eru að stíga fram og ræða það sem öllum ætti að vera augljóst. Þeir leggja starfsframa sinn að veði þar sem ályktanir þeirra falla ekki að pólitískum rétttrúnaði.

Óskandi væri að íslenskir læknar sæju ljósið og gerðu slíkt hið sama.

Hér fyrir neðan er vefslóð á frétt um þetta mál og myndband er þar til staðar þar sem fréttamaður ræðir við nokkra lækna sem standa að fundinum í Ástralíu.

https://www.rebelnews.com/brave_doctors_speak_out_to_reclaim_medicine?utm_campaign=ay_doctorsunion_091322&utm_medium=email&utm_source=therebel

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 778
  • Frá upphafi: 162071

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 490
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband