Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hörmulegar afleiðingar Covid-19

Alvarlegar afleiðingar af völdum kórónuveirunnar eru miklu meiri en þær sem veiran sjálf veldur.

Afleiðingar af völdum aðgerða stjórnvalda um heim allan eru mun alvarlegri en þær sem kórónuveiran sjálf veldur. Afleiðingar koma niður á líkamlegu og andlegu heilbrigði fólks, einangrun, innilokun, hræðilegur ótti hefur gripið um sig hjá fólki á öllum aldri, efnahagslegir erfiðleikar fjölda ríkja og fyrirtækja svo ekki sé talað um þær hræðilegu afleiðingar sem fjárhagur tugi ef ekki hundruð milljóna manna hefur orðið fyrir. Hungur blasir við milljónum manna og aðrar afleiðingar af matarskorti s.s. vannæring og ofbeldi eykst.

Hér á landi virðist vera að fara af stað skriða uppsagna, skuldir þjóðarbúsins margfaldast og þá er hlaupið til handa og fóta að selja mjólkurkýrnar.

Stjórnvöldum væri nær að slaka á svo kölluðum sóttvörnum sem valda meiri vandræðum. Víða um heim fær fólk ekki þá læknishjálp sem það þarf á að halda og enn fleiri þora ekki að leita á bráðavaktir vegna þess að það vill ekki trufla yfirkeyrðar heilbrigðisstéttir eða af ótta við að fá smit.

Þríeykið með sóttvarnarlæknir í broddi fylkingar hefur verið gert að huga að sóttvörnum og það sem þeirra eina markmið. Þau eru ekki að hugsa um aðra þætti sem kórónuveiran veldur, en stjórnvöld fría sig ábyrgð og leggja alla ábyrgðina á þríeykið.

Þetta má ekki vera svona, ef stjórnvöld geta ekki hugsað og útfært hlutina á þann veg að vel fari fyrir alla þá eiga þau að segja af sér og láta aðra um að sigla fleyinu í höfn.

Það eru ekki nærri allir sem fá kórónuveiruna sem verða veikir af völdum hennar, en allir, jafnvel heilbrigt fólk er látið ganga um eins og það sé sjúkt af veirunni.

Það er eitthvað bogið við þetta allt saman, þetta er ekki eins og menn vilja vera láta. Nú er fólk að deyja í kjölfar bólusetningar og enn eiga afleiðingar þeirra eftir að koma í ljós, það getur tekið einhverja mánuði eða jafnvel ár, það veit enginn hvað bólusetningarnar munu leiða af sér fyrr en að löngum tíma liðnum. Í Bretlandi fjölgaði dauðsföllum hjá 80+ ára um 80%, það sama hefur gerst í Gíbraltar, svo dæmi séu tekin.

Fólki er eðlilegt að vera frjálst, fá að hitta vini og kunningja, eiga góðar stundir með ættingjum og vinum, syngja og eiga góðar stundir. Það hlýtur að vera kominn tími til að slaka verulega á, taka niður grímurnar og faðmast, láta óttann ekki stjórna okkur því hann er versti óvinur okkar.

Lifum og verum heil.


mbl.is Hörmulegar afleiðingar Covid-19
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju fjölgar dauðsföllum á meðal eldri borgara í Bretlandi og víðar eftir að bólusetningafaraldurinn fór af stað???

Í myndbandinu hér fyrir neðan frá UK Column News kemur margt í ljós sem er mjög svo upplýsandi fyrir þá sem vilja vita af hverju dauðsföllum fjölgar einkum meðal 80 ára og eldri í Bretlandi og Gíbraltar sem dæmi.

Erum við að fá réttar upplýsingar frá yfirvöldum eða er verið að halda upplýsingum frá okkur??? Í þættinum hér fyrir neðan kemur ýmislegt fram sem yfirvöld fjalla ekki um og fólk almennt veit ekki um.


Hver er sannleikurinn um kórónuveiruna og bóluefnið sem svo margir vilja láta sprauta í sig??????

Í þessum þætti "THINK ABOUT IT" leggja fjöldi heilbrigðisstarfsmanna líf sitt og starf í hættu með því að koma fram undir nafni og lýsa því sem þeir sjá og vita, en fólk í heilbrigðisgeiranum hefur misst líf sitt og sumir atvinnu sína fyrir að tala sannleikann.

Á elleftu mínútu hefjast yfirlýsingar þeirra.


Demókratar lögðu grunninn að því sem koma skal !?!

Er þetta það sem þeir vildu???


Demókratar í vondum málum.

Demókrötum er tamt að skjóta sig í fótinn. Gjörðir þeirra er eins og búmerang, því er kastað upp í loftið fram á við en snýr síðan við og kemur til baka og ef sá sem kastar er ekki varkár gæti það hitt hann í hausinn.

Það eina sem demókratar hafa staðið fyrir síðastliðin fjögur ár er að reyna af öllu afli að koma réttkjörnum forseta frá völdum og notað allskonar brögð til að ná fram áætlun þeirra. Þetta eina sem þeir hafa staðið fyrir mislukkaðist, sem betur fer. Hvernig ætla þeir síðan að sameinast um að stjórna Bandarísku þjóðinni og vinna fyrir fólkið í landinu????? Það var ekki burðugt í tíð Obama, heldur fólk að Biden verði eitthvað betri??????? ég stór efa það.

Demókratar eru í vondum málum.


mbl.is Ákæran gæti orðið Biden fjötur um fót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Demókratar beita réttkjörnum forseta ofbeldi og hafa gert það frá því hann var kjörinn í nóvember 2016.

Alveg frá því Donald Trump var kjörinn forseti Bandaríkjanna 2016 hafa demókratar á ofbeldisfullan hátt reynt að koma honum frá völdum, þeir hafa látið einskis ófreistað í þeim efnum.

Á síðastliðnu ári þegar Antifa og BLM gengu berserksgang víða um Bandaríkin og beittu ofbeldi gegn fólki og fyrirtækjum, neituðu demókrata ítrekað að fordæma aðgerðir þeirra, þá þóttust þeir skilja reiði þeirra.

Nú er Trump sakaður um að hafa hvatt til ofbeldis, en það er fjarri sanni, hann hvatti til friðar, fordæmdi ofbeldi og yfirgang, hann sagði að fara þyrfti að lögum. Eftir atburðinn 6.janúar fordæmdi hann þá sem brutust inn í þinghúsið, en trúlega hafa íslenskir fjölmiðlar ekki fjallað um það frekar en Main Stream Media vestanhafs. Þessir fjölmiðlar gera allt til að sverta Trump og niðra á svæsnasta máta.

Það eru demókratar sem hafa gengið fram með ofbeldi og það gerðu þeir með því að stela kosningunum og var sú athöfn svo augljós en þeir sem áttu að láta reyna á sannleiksgildi og heiðarleika kosninganna neituðu allir sem einn að rannsaka málið. Væru þeir svo vissir um að kosningarnar hafi verið löglegar hefði ekki verið auðvelt fyrir þetta fólk að sannreyna heiðarleika þeirra. En nú er nærri helmingur Bandarísku þjóðarinnar sem ber ekki traust til löggiltra kosninga þeim finnst þeir hafa verið sviknir.

Setjum okkur í þeirra spor. Ef við teldum kosningar á Íslandi vera sviknar og logið að okkur, myndum við bara taka því þegjandi og hljóðalaust?????? Það efast ég um.

Það er furðulegt að í fimm ríkjum (að mig minnir) var Trump með yfirburða forustu á Biden þegar langt var liðið á kvöldið, þá allt í einu hætta menn að telja í öllum þessum ríkjum og senda talningafólk og þá sem áttu að heita talningaeftirlitsmann heim og fara að sofa. Morguninn eftir eru birtar tölur þar sem Biden allt í einu er orðinn sigurvegari í öllum þessum ríkjum.

Margar upplýsingar hafa komið fram sem sýna fram á að um kosningasvik var að ræða. Demókratar og margir Repúblikanar eru mjög svo óheiðarlegt fólk, fólk sem er á spenanum hjá stórfyrirtækjum og ofurríkum körlum sem vilja losna við Trump.

Almenningur í Bandaríkjunum hefur fengið að reyna á eigin skinni hvað og hversu mikið Trump hefur gert fyrir Bandaríksu þjóðina. Fyrir Covid var fólk farið að hafa það mun betra. Fólk sem missti vinnuna undir Bush og Obama fékk aftur vinnu og fólk sem vann hörðum höndum og hafði lítið á milli handana hafði það allt í einu mun betra. Þetta er fólkið sem kom á kjörstað og kaus Trump.

Demókratar beita réttkjörnum forseta ofbeldi og hafa gert það frá því hann var kjörinn í nóvember 2016.


mbl.is Fulltrúadeild tekur ákæru fyrir í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

â€žÍ dag erum við betra samfélag“, er það???????

Sorglegt er að menn skuli telja samfélag sitt betra með lögleiðingu morða á saklausum einstaklingum. Hversu mörg hundruðmilljóna frábærra einstaklinga hefur verið komið fyrir, þau deydd á hroðalegan hátt og fólki finnst það bara eðlilegt.

Á tímum Hitlers þótti þýskum eðlilegt að drepa þá sem þóttu óþægilegir í samfélaginu, eins og fötluðum, sjúkum, gyðingum og öllum þeim sem ekki voru "heilbrigðir" að þeirra mati.

Nú á tímum virðast börn vera fyrir, óþægilegt að hafa þau, þurfa að hugsa um þau og valda því að mæður geta ekki sinnt frama sínum og skemmtanalífi. Þetta er afar sorglegt að sú staða skuli vera í þjóðfélagi okkar og um heim allan.

Munum það að eitt sinn vorum við börn, við vorum framtíðin. Svo eldumst við og erum ekki lengur börn, en ef börn hætta að fæðast, hverra er þá framtíðin??? hverjir munu erfa landið???? hverjir verða afkomendur þeirra sem deyða börn sín?????????

Fyrir utan þinghúsið í Buenos Aires. Vinstra megin má sjá …

 

Fyr­ir utan þing­húsið í Bu­enos Aires. Vinstra meg­in má sjá þá sem studdu frum­varpið og hægra meg­in má sjá þá sem voru á móti því. AFP
 
Hvor hópurinn sýnist þér stærri??? Mér sýnist hópurinn hægra megin vera mun stærri en það eru þeir sem mótmæltu löggjöfinni sem þingið í Buenos Aires samþykkti.

mbl.is „Í dag erum við betra samfélag“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnað samtal tveggja kvenna, önnur er læknir sem hefur djúpa innsýn inn í það sem er að gerast.

Hér er magnað samtal í myndbandinu hér fyrir neðan. Vonandi verður það ekki fjarlægt að youtube eins og flest það sem hefur komið frá lækninum sem viðtalið er við.


Losnum ekki endilega við aðgerðir með bólusetningu, segir Svandís heilbrigðis. Til hvers er þá verið að bólusetja?

Svandís heilbrigðis sagði: "Losnum ekki endilega við aðgerðir með bólusetningu". Þetta hljómar í takt við það sem Anthony Fauci hefur látið út úr sér, en hann sagði ennfremur að fólk þyrfti að halda áfram að ganga með grímur og halda fjarlægð jafnvel fram á næsta haust. Til hvers er þá verið að bólusetja?

Þetta segja "sérfræðingarnir" þrátt fyrir að hafa lýst því yfir að bóluefnið sem á nú að not sér öruggasta bóluefni sem framleitt hefur verið þó svo að nauðsynlegar tilraunir á því hafi ekki farið fram, en það tekur mörg ár að þróa svona bóluefni, nú er það gert á nokkrum mánuðum.

Hvernig er hægt að taka mark á svona fólki? Hvernig er hægt að treysta bóluefni sem "sérfræðingarnir" eru ekki tilbúnir að mæla með betur en svo að mikil óvissa liggur í loftinu. Bólusetningar í gegnum tíðina hafa oft skilið eftir sig slóð vandamála hjá fjölda þeirra sem hafa verið bólusettir.

Bill Gates hefur í mörg ár hvatt til þess að öll heimsbyggðin yrði bólusett. Bill lauk aldrei háskólanámi hvað þá heldur námi sem sérfræðingur í lífefnafræði eða nokkrum læknavísindum. Hann fer þó fremstur í flokki þeirra sem vilja láta bólusetja alla skilyrðislaust. Hann á fyrirtækið Moderna sem framleiðir "bóluefni". Hann gerði sér ferðir til Afríkuríkja og Indlands, bólusetti fjölda ungra stúlkna sem margar hverjar dóu í kjölfarið og um 500þúsund örkumluðust á Indlandi einu, enda er hann óvelkominn til Indlands.

BG og AF eru góðir kunningjar og eins forseti WHO kommúnistinn frá Eþíópíu, maðurinn sem ákærður var fyrir stríðsglæpi en hefur einhverra hluta vegna hlotið vernd elítunnar og kínverskra stjórnvalda.

Ætlum við að láta þetta fólk segja okkur fyrir verkum??? ætlum við að láta þessa menn stjórna lífi okkar????? Hingað til í þessu Covid ferli hefur fólk beygt sig og bugtað fyrir þessu liði, þeir eru að prófa hversu langt hægt sé að fara með fólk, hversu undirgefið að er og þeir hafa örugglega ekki orðið fyrir vonbrigðum.


mbl.is Losnum ekki endilega við aðgerðir með bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband