Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Ef Rússar vilja leggja lag sitt við Ísland höfum við engar varnir, ríkisstjórnin hefur séð til þess.
Evrópskir ráðamenn berjast hatramlega fyrir stöðu sinni, hver í sínu landi, og þá er stríðságengi notuð til að styrkja eigin getu gagnvart fólki sínu.
Íslenskir ráðherrar, konur, sem láta taka myndir af sér með Evrópskum ráðamönnum og láta flagga þeim myndum í Íslenskum fjölmiðlum, svona til að sýnast og axla ábyrgð sem þær geta ekki staðið við. Jú þær fara út með fúlgur fjár til að sína vilja sinn, en hverjir eru það sem þurfa að axla þá ábyrgð, jú það erum við sem borgum skatta hér á landi auk barna okkar og barnabarna.
Leikur íslenskra ráðamanna er ljótur og kemur sér illa fyrir land okkar og þjóð, þær axla ekki ábyrgð gagnvart íslenskri þjóð, þær eru að leita ábyrgðar hjá erlendum ráðamönnum í von á að fá klapp á bakið.
![]() |
Almannavarnir bregðist við hernaðarástandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.3.2025 | 22:22
Hvað um okkur Íslendinga og okkar nær umhverfi. Má ekki efla landamæri okkar fyrir óþokkalíð sem hefur ekki áhuga á okkar málum?????
Hvernig eigum við Íslendingar að taka þátt í hernaði og það á erlendri grund, meðan við getum ekki varið okkar eigin landamæri og haldið óþokkallíð utan landsteina okkar????? Ætlum við að stofna hersveitir og berjast við þá sem á okkur vilja herja eða þá sem vilja herja á okkar nánustu á erlendri grund, en getum ekki varið okkar eigin landamæri?????
Það er eitthvað að á Alþingi okkar og ríkisstjórn, þeirra sem láta okkar nánasta umhverfi verða fyrir ofbeldi íslamista og annarra þeirra sem hafa ekki áhuga á velferð lands okkar og lýðs.
![]() |
Á að efla varnir Íslands? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.2.2025 | 17:45
Erum við tilbúin að mæta því sem í vændum er???
Það sem þessi maður fékk upplýsingar um hefur áhrif á okkur öll. Erum við tilbúin því sem í vændum er??? erum við tilbúin að mæta því sem mun gerast???
Það sem í vændum er hefur áhrif á hvern einasta einstakling, sama hversu miklu þú hefur sparað þér, það eina sem skiptir máli er trúin á Jesú Krist og þau fyrirheit sem hann hefur gefið okkur.
6.1.2025 | 21:57
Einn fremsti stjórnmálamaður sem við höfum átt!!!!!
Margir stuðningsmenn Bjarna Ben. hafa farið stórum um ágæti þess manns. Þessir sömu aðilar virðast þó hafa gleymt þeirri staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei, ALDREI, misst jafn mikið fylgi eins í forustu þess manns.
Þegar ég sagði mig úr Sjálfstæðisflokknum, þegar samþykkja átti Icesave, var mér öllum um og ó, ég gat ekki fylkt þeim flokki sem kom þannig fram við þjóð okkar. Ekki átti ég þó von á því að harmleikur Sjálfstæðisflokksins væri rétt að byrja, en jú flokkurinn missti fylgi sitt við hverjar Alþingiskosningar þar eftir og hefur aldrei, ALDREI, orðið eins lítill og hann er í dag.
Ég tek undir með Geir H. Haarde er hann segir: "GUÐ BLESSI ÍSLAND", Hann einn er verður þess að við lítum til Himna og áköllum Hann sem getur leitt okkur út úr því hrjóstri sem Bjarni Ben. og fleiri hafa komið okkur í.
![]() |
Einn fremsti stjórnmálamaður sem við höfum átt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.11.2024 | 20:30
Viðreisnarvilla vill leiða þjóð okkar afvega
Allir þeir sem sjá og lesa orð Sigmars Guðmundssonar, sem skipar annað sæti lista Viðreisnar í Kraganum, ættu að sjá að Viðreisn er ekki flokkur til að kjósa. Það dettur engum í hug að innganga í ESB og ég tala nú ekki um upptöku evru sem gjaldmiðil í stað íslensku krónunnar, muni breyta neinu til batnaðar hér á landi. Vísitala og vextir í ESB ríkjum eru ekki allir eins á milli landa, það dettur engum í hug að vísitala og vextir í löndum eins og Ítalíu, Póllandi og víðar séu eins og vísitala og vextir í Þýskalandi.
Fólk sem vill lægri vísitölu og vexti ættu að snúa sér að Lýðræðisflokknum og kjósa þann flokk á Alþingi, en þar eru menn með hugmundir um lækkun vísitölu og vaxta okkur öllum til hagsbóta. ESB kemur þar hvergi nærri í þeim vangaveltum.
![]() |
Skýr vilji til að ganga í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2024 | 20:53
Arnar Þór Jónsson á Alþingi
Það yrði mikil gleðifregn ef Arnar Þór Jónsson genngi til liðs við Miðflokkinn og að sjá hann og Sigmund Davíð Gunnlaugsson ásamt fleirum góðum liðsmönnum taka yfir Alþingi og fleita þjóð okkar á góðan stað úr því hildýpi sem núverandi Alþingi hefur komið okkur í.
Ég segi nú bara: GUÐ BLESSI ÍSLAND.
![]() |
Neitar ekki viðræðum við Miðflokkinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.9.2024 | 15:25
Þetta frumvarp verður að víkja, Þórdís verður að hafa hag þjóðarinnar í fyrirrúmi.
Ef Þórdís ætlar þessu frumvarpi í gegnum Alþingi er ljóst að næstu kosningar verða óþarfar. Höfum við þingheim sem þorir að segja NEI við þessari aðför að íslensku réttlæti??? Ef ekki eru þeir búnir að jarðsetja atvinnugrein sína og það að fullu.
Takist Þórdísi ekki að koma þessu frumvarpi í gegnum þingið, er úti um þingsetu hennar.
![]() |
Þórdís boðar eitt frumvarp: Bókun 35 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.5.2024 | 12:14
Munum það kæru vinir að á morgun er stóra valið í lífi okkar.
ANNAÐ HVORT KJÓSUM VIÐ LÝÐRÆÐI EÐA EINRÆÐI. VAL OKKAR ER AÐEINS EITT Í TÓLF MANNA HÓPI, VALIÐ SNÝST UM AÐ KJÓSA ARNAR ÞÓR JÓNSSON SEM FORSETA ÍSLANDS. VAL Á ÖÐRUM FRAMBJÓÐENDUM MUN LEIÐA TIL HRUNS ÍSLENSKU ÞJÓÐARINNAR.
VELJUM RÉTT Á MORGUN, VELJUM ARNAR ÞÓR JÓNSSON SEM NÆSTA FORSETA ÍSLANDS.
27.5.2024 | 12:14
Hver er þinn kostur???
Næsti forseti Íslands, hver ætli það verði???
Ég vil skora á fólk að vekja athygli á framgöngu Arnars Þórs Jónssonar en hann er maður með mikla þekkingu og yfirsýn yfir það sem er að gerast í Íslenskum stjórnmálum. Arnar Þór hefur gefið út yfirsýn yfir það hvernig hann muni starfa sem forseti gagnvart ríkisstjórn og löggjafarþingi.
Það hefur vakið athygli mína að enginn annar frambjóðandi hefur haft þá sýn sem Arnar Þór hefur gagnvart því embætti sem forseti á og þarf að hafa til að verja Íslensku þjóðina gagnvart óprúttnum yfirvöldum. Ekkert hinna frambjóðandanna hefur haft snefil af virðingu gagnvart vörn fólksins sem byggir þetta land. Arnar Þór hefur sýnt fram á að embætti forseta er sett fram til að varðveita heill þjóðar og lands. HVER ANNAR GETUR GERT BETUR EN HANN????
Kjósum Arnar Þór Jónsson sem næsta forseta Íslands.
7.5.2024 | 21:21
Arnar Þór Jónsson var í viðtali hjá Götustrákar
Það var 4.maí sem Arnar Þór Jónsson var í viðtali hjá Götustrákar.
Fyrir hvern þann sem hefur áhuga á velferð Íslands og framför okkar sem þjóðar vil ég benda á að hlusta vel á viðtal Arnar Þórs.
Fyrstu tæpu þrjár mínúturnar eru auglýsingar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Tómas Ibsen Halldórsson
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Heimspeki
- Íþróttir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bloggvinir
-
axelaxelsson
-
flinston
-
baldvinj
-
bergthorolason
-
biggilofts
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
gattin
-
contact
-
einarbb
-
eeelle
-
emilkr
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
gesturgudjonsson
-
gudbjorng
-
zumann
-
tilveran-i-esb
-
coke
-
gunnlauguri
-
gustafskulason
-
conspiracy
-
halldorjonsson
-
hallurhallsson
-
haddi9001
-
maeglika
-
harhar33
-
bordeyri
-
heimssyn
-
don
-
hordurvald
-
ingaghall
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
astromix
-
jakobk
-
johanneliasson
-
johann
-
islandsfengur
-
jonsullenberger
-
jonl
-
bassinn
-
prakkarinn
-
thjodarskutan
-
kiddikef
-
krist
-
kristjan9
-
lifsrettur
-
loncexter
-
magnusg
-
marinogn
-
mofi
-
olof
-
pallvil
-
iceland
-
regu
-
undirborginni
-
samstada-thjodar
-
fullvalda
-
fullveldi
-
duddi9
-
sjonsson
-
thruman
-
athena
-
stebbifr
-
stendors
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
viktor
-
villidenni
-
postdoc
-
thjodarheidur
Nota bene
Tedros
https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 136
- Frá upphafi: 167084
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 83
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar