Færsluflokkur: Bloggar

The Great Reset, Davos, hnattræn hlýnun af mannavöldum, Sameinuðu þjóðirnar.

Hvað er að gerast? hvert stefnum við? hverju megum við búast af yfirvöldum og þeim sem öllu vilja ráða á heims vísu? Hvað með alla þessa sem aldrei hafa verið kosnir til eins eða neins? hver færði þeim þau völd sem þeir leggja nú á heimbyggðina?

Hér á myndbandinu fyrir neðan frá SkyNews Ástralíu er fjallað um þessa hluti að nokkru leiti, áhugavert fréttaskot.


Vopn Demókrata snerust í höndum þeirra og þeir opinberaðir sem hræsnarar frammi fyrir allri Bandarísku þjóðinni.

Lögmaður Trumps sýnir upptökur af Demókrötum þar sem þeir gera það sem þeir ásaka Trump um að hafa gert, nema hvað, hann gerði ekki það sem þeir ásökuðu hann um.

Í næsta myndbandi tekur þessi sami lögmaður fjölmiðlana heldur betur í bakaríið og fjölmiðlakonan sem ætlaði að gera lítið úr lögmanninum mátti heldur betur lúta í gras.


Hræsni Demókrata birtist í þeirra eigin orðum, þeir hafa gleymt því sem þeir hafa sjálfir sagt.

Demókratar falla á eigin bragði, hræsni þeirra hefur komið þeim sjálfum í koll.

Lögmenn Trumps minntu þá á þeirra eigin orð. Enn á ný gátu Demókratar ekki sakfellt Donald Trump, þeir hafa nú reynt allt til að fella hann en þeirra eigin vopn hafa snúist í höndum þeirra og fellt þá sjálfa.


Bandarískur læknir sem var rekinn fyrir að segja sannleikann

Í myndbandinu sem vefslóðin hér fyrir neðan leiðir inná er læknir sem í sumar hélt ræðu ásamt mörgum öðrum læknum þar sem fjallað var um kórónuveiruna og lýsti einfaldri aðferð við að lækna þá sem fengju veiruna. Þessi læknir var rekin úr vinnu fyrir að segja skoðun sína, en hún vann á tveimur sjúkrahúsum á bráðadeild.

Hér fjallar hún um Covid og bóluefnin sem í raun eru á tilraunarstigi og allir þeir sem taka bóluefnið eru tilraunardýr.

Betra er að hlusta á hana heldur en að lesa eftir mig eitthvað sem ég á erfitt með að útskýra.

https://www.bitchute.com/video/3hYtZSFSdq6g/

 


Var kosningunum í Bandaríkjunum stolið ???

Hvað gerðist í forsetakosningunum í Bandaríkjunum 3.nóvember 2020 ???

Demókratar og djúpríkið hefur gert allt til að fela sannleikann, en nú hafa einstaklingar og þar á meðal margir sérfræðingar flett ofan af drullunni sem reynt er að fela.

Hér fyrir neðan er vefslóð á Rumble síðu, ekki YouTube, þar sem farið er í saumana á hlutunum. Þetta er tveggja tíma prógramm og er vel þess virði að hlusta á það allt, en í seinni hlutanum (eftir 1klst. og 36mín.) birtast svakalegar upplýsingar sem fær hroll til að fara um mann.

Hefði þetta myndband verið sett á youtube hefði því verið eytt um leið, en þar sem youtube hefur ekkert með Rumble að gera þá fá þessar upplýsingar að vera uppi.

https://rumble.com/vdlebn-mike-lindell-absolute-proof-exposing-election-fraud-and-the-theft-of-americ.html

 

 


Hörmulegar afleiðingar Covid-19

Alvarlegar afleiðingar af völdum kórónuveirunnar eru miklu meiri en þær sem veiran sjálf veldur.

Afleiðingar af völdum aðgerða stjórnvalda um heim allan eru mun alvarlegri en þær sem kórónuveiran sjálf veldur. Afleiðingar koma niður á líkamlegu og andlegu heilbrigði fólks, einangrun, innilokun, hræðilegur ótti hefur gripið um sig hjá fólki á öllum aldri, efnahagslegir erfiðleikar fjölda ríkja og fyrirtækja svo ekki sé talað um þær hræðilegu afleiðingar sem fjárhagur tugi ef ekki hundruð milljóna manna hefur orðið fyrir. Hungur blasir við milljónum manna og aðrar afleiðingar af matarskorti s.s. vannæring og ofbeldi eykst.

Hér á landi virðist vera að fara af stað skriða uppsagna, skuldir þjóðarbúsins margfaldast og þá er hlaupið til handa og fóta að selja mjólkurkýrnar.

Stjórnvöldum væri nær að slaka á svo kölluðum sóttvörnum sem valda meiri vandræðum. Víða um heim fær fólk ekki þá læknishjálp sem það þarf á að halda og enn fleiri þora ekki að leita á bráðavaktir vegna þess að það vill ekki trufla yfirkeyrðar heilbrigðisstéttir eða af ótta við að fá smit.

Þríeykið með sóttvarnarlæknir í broddi fylkingar hefur verið gert að huga að sóttvörnum og það sem þeirra eina markmið. Þau eru ekki að hugsa um aðra þætti sem kórónuveiran veldur, en stjórnvöld fría sig ábyrgð og leggja alla ábyrgðina á þríeykið.

Þetta má ekki vera svona, ef stjórnvöld geta ekki hugsað og útfært hlutina á þann veg að vel fari fyrir alla þá eiga þau að segja af sér og láta aðra um að sigla fleyinu í höfn.

Það eru ekki nærri allir sem fá kórónuveiruna sem verða veikir af völdum hennar, en allir, jafnvel heilbrigt fólk er látið ganga um eins og það sé sjúkt af veirunni.

Það er eitthvað bogið við þetta allt saman, þetta er ekki eins og menn vilja vera láta. Nú er fólk að deyja í kjölfar bólusetningar og enn eiga afleiðingar þeirra eftir að koma í ljós, það getur tekið einhverja mánuði eða jafnvel ár, það veit enginn hvað bólusetningarnar munu leiða af sér fyrr en að löngum tíma liðnum. Í Bretlandi fjölgaði dauðsföllum hjá 80+ ára um 80%, það sama hefur gerst í Gíbraltar, svo dæmi séu tekin.

Fólki er eðlilegt að vera frjálst, fá að hitta vini og kunningja, eiga góðar stundir með ættingjum og vinum, syngja og eiga góðar stundir. Það hlýtur að vera kominn tími til að slaka verulega á, taka niður grímurnar og faðmast, láta óttann ekki stjórna okkur því hann er versti óvinur okkar.

Lifum og verum heil.


mbl.is Hörmulegar afleiðingar Covid-19
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju fjölgar dauðsföllum á meðal eldri borgara í Bretlandi og víðar eftir að bólusetningafaraldurinn fór af stað???

Í myndbandinu hér fyrir neðan frá UK Column News kemur margt í ljós sem er mjög svo upplýsandi fyrir þá sem vilja vita af hverju dauðsföllum fjölgar einkum meðal 80 ára og eldri í Bretlandi og Gíbraltar sem dæmi.

Erum við að fá réttar upplýsingar frá yfirvöldum eða er verið að halda upplýsingum frá okkur??? Í þættinum hér fyrir neðan kemur ýmislegt fram sem yfirvöld fjalla ekki um og fólk almennt veit ekki um.


Vakna þú sem sefur !!!

10Metið rétt, hvað Drottni þóknast. 11Eigið engan hlut í verkum myrkursins, sem ekkert gott hlýst af, heldur flettið miklu fremur ofan af þeim. 12Því að það, sem slíkir menn fremja í leyndum, er jafnvel svívirðilegt um að tala. 13En allt það, sem ljósið flettir ofan af, verður augljóst. Því að allt, sem er augljóst, er ljós.

14Því segir svo:

Vakna þú, sem sefur,

og rís upp frá dauðum,

og þá mun Kristur lýsa þér.

15Hafið því nákvæma gát á, hvernig þér breytið, ekki sem fávísir, heldur sem vísir. 16Notið hverja stund, því að dagarnir eru vondir. 17Verið því ekki óskynsamir, heldur reynið að skilja, hver sé vilji Drottins.

Biblían, Efesusbréf 5.kafli vers 10-17

 


Hver er sannleikurinn um kórónuveiruna og bóluefnið sem svo margir vilja láta sprauta í sig??????

Í þessum þætti "THINK ABOUT IT" leggja fjöldi heilbrigðisstarfsmanna líf sitt og starf í hættu með því að koma fram undir nafni og lýsa því sem þeir sjá og vita, en fólk í heilbrigðisgeiranum hefur misst líf sitt og sumir atvinnu sína fyrir að tala sannleikann.

Á elleftu mínútu hefjast yfirlýsingar þeirra.


Demókratar lögðu grunninn að því sem koma skal !?!

Er þetta það sem þeir vildu???


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 167481

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband