Hann mætti Jesú Kristi.

Kanye West mætti Jesú Kristi og það hefur breytt lífi hans á ýmsa vegu, þar á meðal að snúa sér frá áfengi svo dæmi sé tekið. En það sem mestu skiptir er eilífa lífið sem Drottinn boðar okkur. Jóhannes postuli segir: "En öllum þeim sem tóku við Honum (Jesú) gaf Hann rétt til að vera Guðs börn." Jóh.1:12

 Kanye West.


mbl.is Viðurkennir alkóhólisma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boðskapurinn sem snertir alla og allir taka afstöðu til, vitandi eða óaðvitandi.

Þú kemst ekki hjá því að taka afstöðu. Ef þú segist vera hlutlaus og þú takir ekki afstöðu til málsins, þá ertu búinn að taka afstöðu.

Ef við tökum ekki afstöðu með Jesú, þiggjum fyrirgefningu hans fyrir syndir okkar og snúum okkur til Hans og fylgjum Honum, þá höfum við hafnað Honum. Það mun hafa eilífar afleiðingar fyrir okkur þar sem við erum eilífar verur, við höldum áfram að vera til eftir að þessu jarðneska lífi líkur.

Nú fara páskar í hönd þar sem við minnumst þess að Jesús Kristur var krossfestur, grafinn og Hann reis upp frá dauðum. Dauðinn gat ekki haldið Honum þar sem Hann var syndlaus. Við erum ekki syndlaus, en Jesús tók sekt okkar á sig, það gerði Hann á krossinum og Hann býður okkur eilífa vist með Honum þar sem friður, gleði, líf, hamingja og vinátta ríkir og þar sem sjúkdómar eru ekki til. Þeir sem hafna Jesú velja þann stað þar sem allt hið gagnstæða ríkir. Jesús sagði að þar mun verða grátur og gnístran tanna.

Veldu Jesú, Hann elskar þig og vill þér allt hið besta. Líf okkar hér á jörð er mjög stutt í samhengi við eilífðina. Þú skiptir máli fyrir Guði, Hann þráir samfélag við þig, Hann þráir að gefa þér það besta sem til er.

Hér fyrir neðan er myndband þar sem fjallað eru hver Jesús er. Það er Billy Graham sem talar. Hlustaðu og leifðu Anda Guðs að tala til þín.

GLEÐILEGA PÁSKA


Fæðuöryggi er ekkert hjal!!!

Fátt er svo með öllu illt að eigi boði gott!!! Þó svo að ég hefði kosið að þessi veira kórónunnar hefði ekki komið upp þá má þó þakka fyrir að ekki var búið að útrýma landbúnaðinum í landinu eins og sumir, helst þá kratar, hefðu viljað og treysta á innflutt matvæli til að halda lífinu í þjóðinni.

Nú ætti öllum að vera ljóst að það er landbúnaðurinn og sjávarútvegurinn sem eru þær greinar sem fæða geta þjóðina fram yfir innfluttar vörur jafnvel frá ESB ríkjum. Að ætla sér að treysta á ESB öruggi í þessum málum er bábilja og má aldrei verða.


mbl.is Fæðuöryggi ekkert hjal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandinn sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir er ekki aðins . . .

. . . kórónuveiran, heldur efnahagsleg- og alls konar önnur höft.

Höft í samskiptum fólks, höft á ferðalögum, höft í atvinnulífinu, atvinnuleysi, minni tekjur vegna minna starfshlutfalls o.s.frv., o.s.frv. Ekki öll kurl enn komin til grafar.

Þegar líður á aprílmánuð munum við fá að heyra um frekari lengingu á samkomubanni og öðrum höftum. Sjáið til, þegar fram í sækir snýst þetta ekki bara um kórónuveiruna, það á ýmislegt eftir að koma í ljós. Sjáið hvernig allar þjóðir spila í takt þrátt fyrir smá frábrigði hér og þar, þetta þarf að líta trúverðuglega út.


mbl.is Samkomubannið gildi út apríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2020
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 75
  • Frá upphafi: 162494

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband