Þessi læknir hafði starfað á gjörgæslu í 20 ár . . .

. . . hún var rekin úr starfi fyrir að segja sannleikann um kórónuveiruna.

Myndband á youtube þar sem hún og hópur annarra lækna kom fram á var tekið niður þar sem það féll ekki að pólitískum rétttrúnaði.


Richard Bartlett læknir, útskýrir kórónuveiruna og hvernig hægt er að lækna fólk . . .

. . . af henni á einfaldan hátt. Enginn af hans sjúklingum hefur dáið af Covid 19. 

Sjáið viðtal viðhann á myndbandinu hér fyrir neðan.


Skaðsemi 5G senda

Félagið og einstaklingarnir kærðu úthlutun tíðniheimilda...

"Úrsk­urðar­nefnd fjar­skipta- og póst­mála hef­ur vísað frá kæru á hend­ur Póst- og fjar­skipta­stofn­un vegna út­hlut­un­ar tíðni­heim­ilda fyr­ir 5G-senda. Kær­end­ur voru Geisla­björg, fé­lag fólks um frelsi frá raf­meng­un, og fjór­ir ónafn­greind­ir ein­stak­ling­ar sem kröfðust þess að ákv­arðan­irn­ar yrðu felld­ar úr gildi.

Póst- og fjar­skipta­stofn­un krafðist frá­vís­un­ar á þeim for­send­um að kær­end­ur væru ekki aðilar að mál­inu enda ættu þeir ekki beinna lögvar­inna hags­muna að gæta af úr­lausn þessa máls."

Svo hljóðar frétt á mbl.is

Það er með ólíkindum að vísa máli frá þar sem kærendur væru ekki aðilar að umræddu máli. En málið snýst um heilsufarsáhrif vegna geislunar sem 5G veldur. Ljóst má vera að allir, ALLIR, lifandi menn og konur, ungir sem gamlir eru aðilar að málinu þar sem geislar 5G munu valda þeim heilsutjóni þegar fram í sækir. Annað hvort hafa rannsóknir ekki farið fram er sýna hið augljósa eða að niðurstöðum þeirra er haldið leyndum fyrir almenningi, því allur almenningur myndi hiklaust andmæla uppsetningu 5G senda í landinu. Ég veit til þess að víða erlendis mótmælir fólk uppsetningu sendanna. Geislun sem 5G veldur mun hafa skaðleg áhrif á líf og heilsu fólks og dýra.

Ég skora á Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála og alla ráðamenn sem að málinu koma að láta setja slíka senda upp á skrifstofum sínum og heimilum í hið minnsta þrjú ár til reynslu og sönnunar fyrir okkur efasemdafólksins. Ef geislun vegna þeirra sannast að vera skaðlaus mætti skoða málið á nýjan leik.

En að halda því fram að aðrir hagsmunir en fjárhagslegir hagsmunir eigi ekki við í þessu máli er tóm della.


mbl.is Kæru vegna „rafmengunar“ vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

5G tækniframfarir eða vágestur ? ? ?

Mörg ríki eru nú að skoða hvort útiloka eigi Huawei …

5G byggir á örbylgjusendingum. Við vitum hvað gerist ef hlutir, matur eða eitthvað annað er sett inn í örbylgjuofn, örbylgjurnar hita gífurlega, sjóða eða hita matvæli svo dæmi séu tekin. 5G byggir á sömu tækni nema hvað örbylgjurnar eru ekki eins öflugar og í örbylgjuofni.

GSM símar, netþjónar og annað sem kemur til með að notast við 5G sendingar eru sífellt að taka á móti eða senda frá sér örbylgjur. Hvaða afleiðingar mun það hafa á mannslíkamann sem er með símann meira og minna í vasanum eða við höfuðið að tala í símann, eða að horfa á skjáinn í símanum eða spjaldtölvunni. Það sama má segja um fartölvurnar og allt sem tekur á móti eða sendir frá sér með þessari "tækni".

Þeir sem eru að setja upp 5G senda finna fyrir því á líkama sínum og hafa sumir þeirra líst ótta við það hvaða afleiðingar 5G muni hafa á líf og heilsu fólk, en rannsóknir þar um hafa verið mjög litlar eða að þeim er haldið leyndum, peningaöflin, hagnaðurinn og sú tækni sem þetta mun veita þeim sem vilja fylgjast náið með því hvað fólk er að gera ræður för.

Í Kína er tæknin orðin sú að hægt er að fylgjast með fólki, athöfnum þeirra, hvert það fer, hverja það hittir, hvaða félagskap það tilheyrir, hvernig það verslar inn og hvar það verslar og svo margt fleira. Búin hafa verið til forrit sem lesa þessar upplýsingar, en forrit eru til sem lesa andlit hverrar persónu hvar svo sem hún er stödd, þar sem hundruð milljóna myndavéla eru dreifð um Kína sem gera það að verkum að hægt er að fylgjast með hverri einni og einustu manneskju.

Talandi um stóra bróður eða George Orwel og bókina hans 1984, þá erum við stödd akkúrat þar.

Vil ég hvetja stjórnvöld að láta af að setja upp 5G og banna það með öllu hér á landi. Stóri bróðir í Kína eða annarsstaðar þarf ekki að fylgjast með okkur og ekki heldur íslenska ríkisvaldið.

 


mbl.is Huawei útilokað í Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þétt setinn fundur neyðarstjórnar Reykjavíkurborgar vegna hópsýkingar

Það er eins gott að hópsýking og smit hafi ekki borist manna á milli á þessum fundi. Hvar er fjarlægðarreglan manna á milli hér? á hún kannski ekki við nú? og kannski ekki hjá þessum hópi?


mbl.is Neyðarstjórn fundar vegna hópsýkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn um kórónuna sem enginn vill bera ! ! !

Sá fjöldi sem "vísindamenn" og aðrir sérfræðingar spáðu fyrir um að myndi deyja af völdum kórónuveirunnar er mun meiri en raun varð á. Bill Gates sagði fyrir 5 árum að 60milljónir myndu deyja af völdum kórónuveirunnar, löngu áður en hún lét á sér kræla. Spádómar sérfræðinganna hafa fallið langt frá raunveruleikanum. Fjöldi þeirra sem hafa látist af völdum veirunnar eru álíka margir og í venjulegri flensu. Enn fleiri eru að deyja af völdum þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til til að "verja" fólk fyrir ódæðinu.
 
Margir hafa tekið að sér að hæða Donald Trump fyrir að taka inn hýdroxýklórókín sem er ætlað gegn malaríu. Nú hefur forseti El Salvador sagst taka inn sama lif og segir alla leiðtoga á heimsvísu gera hið sama sem fyrirbyggjandi meðferð, þeim sé ráðlegt að gera það og hann segist ekki skilja af hverju almenningur sé ekki hvattur til hins sama.

 

VIRUS UPDATE

“CDC Confirms Extremely Low COVID-19 Death Rate” The Coronavirus is nothing more than a flu, but it hits the elderly hard and kills people with any underlining medical issues. This was was an attempt by the deep state to take down America. The good news we are all now well aware of their stratagems!
“The CDC just came out with a report that should be earth-shattering to the narrative of the political class, yet it will go into the thick pile of vital data and information about the virus that is not getting out to the public.
For the first time, the CDC has attempted to offer a real estimate of the overall death rate for COVID-19, and under its most likely scenario, the number is 0.26%. Officials estimate a 0.4% fatality rate among those who are symptomatic and project a 35% rate of asymptomatic cases among those infected, which drops the overall infection fatality rate (IFR) to just 0.26% — almost exactly where Stanford researchers pegged it a month ago.”

CURE AND THE ELITES

“President of El Salvador Announces That He is Taking Hydroxychloroquine, Says ‘Most World Leaders’ Doing the Same” They elites want lots of deaths, so they can control us. What they are doing is murder by bureaucracy! They are doing this right before our eyes.
“President of El Salvador Nayib Bukele has announced that he is taking hydroxychloroquine as a preventative measure against the coronavirus.
Bukele told reporters on Tuesday that “most world leaders” are doing the same and has questioned why world leaders are being advised to use it while the public is not.“I use it as a prophylaxis, President Trump uses it as a prophylaxis, most of the world’s leaders use it as a prophylaxis,” said Bukele.

 


Hvað er Antonio Guterres að fara???????

Viðtengd frétt á mbl.is byrjar svona "Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, vill að allt verði gert til að binda enda á „fljóðbylgju haturs og rasisma“ vegna kórónuveirunnar."

Staðreyndin er súa að aðgerðir stjórnvalda um heim allan valda meiri skaða en þau dauðsföll sem skráð eru á téða veiru.

 

Er að furða að fólk getur orðið sárt og reitt vegna þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til um heim allan vegna þrístings frá WHO - World Health Organization -. Það vill svo til að á degi hverjum deyr fólk úr elli og úr ýmsum sjúkdómum sem herja á mankynið, en nú kenna menn veiru um svo hægt sé að fjötra fólk og koma á alheims fjármálakreppu. Í Bandaríkjunum hafa mörg dauðsföll verið skráð á Covid jafnvel þar sem Covid hefur hvergi komið nærri, meira að segja dauðsfall vegna umferðarslyss.

Mun færri munu hafa dáið úr þessari "Covid" veiru en þeir sem eiga eftir að deyja vegna þeirra afleiðinga sem lokun efnahagslífsins mun koma til með að valda á næstu mánuðum, dauðsföll sem yfirvöld munu ekki kenna Covid um. Talið er að hundruð milljóna munu deyja úr hungri vegna afleiðinga lokana sem framkvæmdar hafa verið og eins munu margir hreinlega deyja úr ótta og upplausn heimila og þjóðfélaga vegna þessa. Óttinn er okkar mesti óvinur ekki Covid.

Nú í meira en fimm ár hefur Bill Gates verið að tala um að það þurfi að búa til bóluefni og bólusetja alla heimsbyggðina fyrir kórónuveirunni, löngu áður en hún fór að láta á sér kræla. Merkilegt að þessi maður er að ræða svo mikið um þessa hluti, hann er ekki læknir, ekki vísindamaður og ýmsir hafa sagt að hann hafi ekki einu sinni lokið háskólaprófi. Einhverra hluta vegna er þessi maður talinn einn sá ríkasti í heimi og í krafti auðs síns gengur hann fram og vill stjórna því sem hann vill. Hann hefur oftar enn einu sinni látið það út úr sér að of margt fólk væri á jörðinni og það þurfi að fækka þeim. Hann hefur lagt ýmist af mörkum í þeim efnum með bólusetningum í Afríku sem valda því að konur verði ófrjóar og með fósturmorðum.

Antonio Guterres er augljóslega að undirbúa sig og stjórnvöld víða um heim undir óróleika sem þeir, þ.e. Sameinuðu þjóðirnar með WHO í broddi fylkingar, hafa sjálfir komið í kring með aðgerðum sínum. Það er merkilegt hvernig pólitískir rétttrúnaðarsinnar tala um hatur og rasisma þegar fólk beygir sig ekki og buktar undir þeirra pólitíska rétttrúnað.

Lokun var misráðið. Ég er ekki vísindamaður, en ég fullyrði að þessi veira er akki að valda þeim skaða sem sagt er að hún valdi. Mesti skaðinn er lokunin, að stígja fólki í sundur og ég tala ekki um óttann sem sáð er í hugi og hjörtu fólks, en þar er mesti skaðinn. Elítan veit að auðvelt er að stjórna óttaslegnu fólki.

Verum hugrökk, óttalaus, elskum og virðum hvert annað, látum ekki aðra stjórna hugsunum okkar og gjörðum. Og ég hvet alla að láta ekki bólusetja sig þegar þar að kemur, það er engin tilviljun að nú verði þess krafist af allri heimsbyggðinni að láta bólusetja sig, það er meira í þessari sprautu en menn vilja vera láta.

 


mbl.is „Flóðbylgja haturs og rasisma“ vegna veirunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann mætti Jesú Kristi.

Kanye West mætti Jesú Kristi og það hefur breytt lífi hans á ýmsa vegu, þar á meðal að snúa sér frá áfengi svo dæmi sé tekið. En það sem mestu skiptir er eilífa lífið sem Drottinn boðar okkur. Jóhannes postuli segir: "En öllum þeim sem tóku við Honum (Jesú) gaf Hann rétt til að vera Guðs börn." Jóh.1:12

 Kanye West.


mbl.is Viðurkennir alkóhólisma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boðskapurinn sem snertir alla og allir taka afstöðu til, vitandi eða óaðvitandi.

Þú kemst ekki hjá því að taka afstöðu. Ef þú segist vera hlutlaus og þú takir ekki afstöðu til málsins, þá ertu búinn að taka afstöðu.

Ef við tökum ekki afstöðu með Jesú, þiggjum fyrirgefningu hans fyrir syndir okkar og snúum okkur til Hans og fylgjum Honum, þá höfum við hafnað Honum. Það mun hafa eilífar afleiðingar fyrir okkur þar sem við erum eilífar verur, við höldum áfram að vera til eftir að þessu jarðneska lífi líkur.

Nú fara páskar í hönd þar sem við minnumst þess að Jesús Kristur var krossfestur, grafinn og Hann reis upp frá dauðum. Dauðinn gat ekki haldið Honum þar sem Hann var syndlaus. Við erum ekki syndlaus, en Jesús tók sekt okkar á sig, það gerði Hann á krossinum og Hann býður okkur eilífa vist með Honum þar sem friður, gleði, líf, hamingja og vinátta ríkir og þar sem sjúkdómar eru ekki til. Þeir sem hafna Jesú velja þann stað þar sem allt hið gagnstæða ríkir. Jesús sagði að þar mun verða grátur og gnístran tanna.

Veldu Jesú, Hann elskar þig og vill þér allt hið besta. Líf okkar hér á jörð er mjög stutt í samhengi við eilífðina. Þú skiptir máli fyrir Guði, Hann þráir samfélag við þig, Hann þráir að gefa þér það besta sem til er.

Hér fyrir neðan er myndband þar sem fjallað eru hver Jesús er. Það er Billy Graham sem talar. Hlustaðu og leifðu Anda Guðs að tala til þín.

GLEÐILEGA PÁSKA


Fæðuöryggi er ekkert hjal!!!

Fátt er svo með öllu illt að eigi boði gott!!! Þó svo að ég hefði kosið að þessi veira kórónunnar hefði ekki komið upp þá má þó þakka fyrir að ekki var búið að útrýma landbúnaðinum í landinu eins og sumir, helst þá kratar, hefðu viljað og treysta á innflutt matvæli til að halda lífinu í þjóðinni.

Nú ætti öllum að vera ljóst að það er landbúnaðurinn og sjávarútvegurinn sem eru þær greinar sem fæða geta þjóðina fram yfir innfluttar vörur jafnvel frá ESB ríkjum. Að ætla sér að treysta á ESB öruggi í þessum málum er bábilja og má aldrei verða.


mbl.is Fæðuöryggi ekkert hjal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.8.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 168949

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband