â€žÍ dag erum við betra samfélag“, er það???????

Sorglegt er að menn skuli telja samfélag sitt betra með lögleiðingu morða á saklausum einstaklingum. Hversu mörg hundruðmilljóna frábærra einstaklinga hefur verið komið fyrir, þau deydd á hroðalegan hátt og fólki finnst það bara eðlilegt.

Á tímum Hitlers þótti þýskum eðlilegt að drepa þá sem þóttu óþægilegir í samfélaginu, eins og fötluðum, sjúkum, gyðingum og öllum þeim sem ekki voru "heilbrigðir" að þeirra mati.

Nú á tímum virðast börn vera fyrir, óþægilegt að hafa þau, þurfa að hugsa um þau og valda því að mæður geta ekki sinnt frama sínum og skemmtanalífi. Þetta er afar sorglegt að sú staða skuli vera í þjóðfélagi okkar og um heim allan.

Munum það að eitt sinn vorum við börn, við vorum framtíðin. Svo eldumst við og erum ekki lengur börn, en ef börn hætta að fæðast, hverra er þá framtíðin??? hverjir munu erfa landið???? hverjir verða afkomendur þeirra sem deyða börn sín?????????

Fyrir utan þinghúsið í Buenos Aires. Vinstra megin má sjá …

 

Fyr­ir utan þing­húsið í Bu­enos Aires. Vinstra meg­in má sjá þá sem studdu frum­varpið og hægra meg­in má sjá þá sem voru á móti því. AFP
 
Hvor hópurinn sýnist þér stærri??? Mér sýnist hópurinn hægra megin vera mun stærri en það eru þeir sem mótmæltu löggjöfinni sem þingið í Buenos Aires samþykkti.

mbl.is „Í dag erum við betra samfélag“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnað samtal tveggja kvenna, önnur er læknir sem hefur djúpa innsýn inn í það sem er að gerast.

Hér er magnað samtal í myndbandinu hér fyrir neðan. Vonandi verður það ekki fjarlægt að youtube eins og flest það sem hefur komið frá lækninum sem viðtalið er við.


Hvernig er hægt að fullyrða þetta???

"Alvarlegar aukaverkanir afar sjaldgæfar" Þetta var fullyrt um bóluefni sem gefa á fólki vegna kórónuveirunnar. Hvernig er hægt að fullyrða nokkuð um það þegar örfáir hafa þegar verið "bólusettir" á heimsvísu????? Og að fullyrða að bóluefnið sé 90% eða 95% öruggt er óskhyggja. Hvernig er hægt að leggja traust sitt á óskhyggju sem enginn veit hvort muni rætast eða ekki.

Í Alaska var kona ein, heilbrigðisstarfsmaður" bólusett og á innan við 10 mínútum var hún orðin alvarlega veik, fékk bráðaofnæmi fyrir efninu. Fram að þessu hafði konan ekki verið með ofnæmi eða sýnt viðbrögð við slíku. Sem betur fer virðist hún vera að ná sér, en fáum við að vita ef einhver muni ekki ná sér eða ef dauðsföll muni verða af völdum "bóluefnisins"?

En þegar stjórnvöld fullyrða að bóluefnið sé öruggt á þessu stigi málsins má ganga frá því sem vísu að svo sé ekki. Það er mín skoðun.!!!

 


mbl.is Alvarlegar aukaverkanir afar sjaldgæfar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öfugmæli fyrrum varaforseta Bandaríkjanna.

„Við höfum aldrei áður séð jafn öfgafulla afstöðu,“ segir Joe Biden.

Hvílík öfugmæli!!! Þessi maður átti drjúgan þátt í þeim ofsóknum sem Demókratar og fjölmiðlar í Bandaríkjunum háðu gegn Donald Trump forseta. Í hátt í fjögur ár voru nornaveiðar gegn Trump viðhaldi af fulltrúadeild Bandaríska þingsins með dyggri aðstoð fjölmiðla.

Biden átti tillögu að herferð gegn Michael Flynn sem átti að vera liður í því að fella Trump.

Demókratar hafa kennt Trump og fylgdarliði hans um allt sem þeir sjálfir hafa aðhafst, allt sem þeir hafa gert herma þeir upp á Trump. Sem varaforseti vann Biden dyggilega að því að hygla sér og sínum.

Það er alveg ljóst að kosningasvindl átti sér stað þrátt fyrir yfirlýsingar íslenskra og Bandarískra fjölmiðla sem ekki hafa haft áhuga á að rannsaka hið augljósa.


mbl.is Biden harðorðari en áður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Losnum ekki endilega við aðgerðir með bólusetningu, segir Svandís heilbrigðis. Til hvers er þá verið að bólusetja?

Svandís heilbrigðis sagði: "Losnum ekki endilega við aðgerðir með bólusetningu". Þetta hljómar í takt við það sem Anthony Fauci hefur látið út úr sér, en hann sagði ennfremur að fólk þyrfti að halda áfram að ganga með grímur og halda fjarlægð jafnvel fram á næsta haust. Til hvers er þá verið að bólusetja?

Þetta segja "sérfræðingarnir" þrátt fyrir að hafa lýst því yfir að bóluefnið sem á nú að not sér öruggasta bóluefni sem framleitt hefur verið þó svo að nauðsynlegar tilraunir á því hafi ekki farið fram, en það tekur mörg ár að þróa svona bóluefni, nú er það gert á nokkrum mánuðum.

Hvernig er hægt að taka mark á svona fólki? Hvernig er hægt að treysta bóluefni sem "sérfræðingarnir" eru ekki tilbúnir að mæla með betur en svo að mikil óvissa liggur í loftinu. Bólusetningar í gegnum tíðina hafa oft skilið eftir sig slóð vandamála hjá fjölda þeirra sem hafa verið bólusettir.

Bill Gates hefur í mörg ár hvatt til þess að öll heimsbyggðin yrði bólusett. Bill lauk aldrei háskólanámi hvað þá heldur námi sem sérfræðingur í lífefnafræði eða nokkrum læknavísindum. Hann fer þó fremstur í flokki þeirra sem vilja láta bólusetja alla skilyrðislaust. Hann á fyrirtækið Moderna sem framleiðir "bóluefni". Hann gerði sér ferðir til Afríkuríkja og Indlands, bólusetti fjölda ungra stúlkna sem margar hverjar dóu í kjölfarið og um 500þúsund örkumluðust á Indlandi einu, enda er hann óvelkominn til Indlands.

BG og AF eru góðir kunningjar og eins forseti WHO kommúnistinn frá Eþíópíu, maðurinn sem ákærður var fyrir stríðsglæpi en hefur einhverra hluta vegna hlotið vernd elítunnar og kínverskra stjórnvalda.

Ætlum við að láta þetta fólk segja okkur fyrir verkum??? ætlum við að láta þessa menn stjórna lífi okkar????? Hingað til í þessu Covid ferli hefur fólk beygt sig og bugtað fyrir þessu liði, þeir eru að prófa hversu langt hægt sé að fara með fólk, hversu undirgefið að er og þeir hafa örugglega ekki orðið fyrir vonbrigðum.


mbl.is Losnum ekki endilega við aðgerðir með bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tucker Carlson afhjúpar hræsni "sérfræðingana" sem margir segja eitt í dag og annað á morgun.

Upplýsandi að hlusta á þennan 13 mínútna þátt um sérfræðingana um kórónuveiruna og heyra ráðleggingar þeirra og síðan afleiðingarnar sem þær hafa kostað einkum börnin sem ekki fengu að stunda nám sitt í skólanum sínum.


mbl.is Segir samsæriskenningar ekki mega grassera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningasvindl sem mbl.is gerir lítið úr

mbl.is virðist ekki afla sér upplýsinga um það sem er að gerast í Bandaríkjunum, heldur kasta fram falsfréttum sem þeir, mbl.is, eru mataðir af líklega frá CNN eða MSNBC.

Ítrekað gera "fréttamenn" lítið úr Trump forseta þegar hann lýsir því yfir að um kosningasvik hafi verið að ræða í forsetakosningunum í byrjun nóvember.  Fram hafa stigið fjöldi fólks sem ýmist var að kjósa, störfuðu við kosningarnar eða áttu að fylgjast með talningu sem lýsa því yfir að ekki hafi allt verið með feldu.  Til dæmis við talningar seint á þriðjudagskveldi 3.nóvember eða þegar var komið fram á nótt og Trump hafði góða forustu yfir Biden þá var ákveðið að fresta talningu og fólk sent heim. Daginn eftir var Biden skyndilega komin með forustu á Trump. Fólk sem hafði setið eftir, fór ekki heim, sá hvar trukkar komu á talningastaði með fjölda atkvæða sem öll voru Biden atkvæði.

Margt annað er það sem fólk varð vitni að og fjöldi manns hefur stigið fram og lýst því sem það varð vitni að. Þegar allt þetta verður tekið til athugunar og réttlæti verður látið ráða mun Trump standa uppi sem sigurvegari og sitja áfram næstu fjögur árin.

Hér fyrir neðan eru smá brot af því sem um ræðir og finna má enn fleiri vitnisburði á youtube.


mbl.is Trump flutti 46 mínútna yfirlýsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Des. 2020
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband