Er það okkur til góðs að vera í A-flokki greiningarfyrirtækja?

Síðast þegar Ísland komst í A-flokk greiningarfyrirtækja var í aðdraganda fjármálahrunsins 2008. Nú er Ísland enn á ný komið í þennan vafasama flokk. Af hverju segi ég vafasama flokk? Jú við Íslendingar lærum yfirleitt seint af mistökum okkar. Nú segja menn að allt sé í stakasta lagi, allt á uppleið og bara bjart framundan. Ég vil hins vegar vara við of mikilli bjartsýni og minna menn á að allt var í góðu lagi og allt á uppleið árið 2008 þegar skyndilega hrunið dundi yfir okkur og við óviðbúin. Reyndin virðist vera sú að sagan endurtekur sig og ef við gætum ekki að okkur lendum við í annarri kreppu áður en varir.

Nú kappkosta menn að byggja, helst hótel og þess háttar, í von um að milljónir ferðamanna sæki Ísland heim árlega um ókomna framtíð. En hvað ef sú staða kæmi upp að ferðamenn hafa ekki lengur efni á að koma til Íslands og ferðamanna-straumurinn hrapi niður úr öllu valdi? erum við undirbúin undir slíkt? Eru aðrar atvinnugreinar tilbúnar að taka við keflinu og halda velmegun þjóðarinnar á lofti?

Er það virkilega gott fyrir okkur að vera skráð í A-flokk greiningarfyrirtækja? ég bara spyr, sí svona.

 


mbl.is Viðurkenning á góðri efnahagsstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það virðast allir vera búnir að gleyma því að þessi sömu matsfyrirtæki gáfu föllnu bönkunum á Íslandi HÆSTU EINKUNN KORTERI FYRIR EFNAHAGSHRUN.  Svo eru menn alveg að rifna af stolti yfir þessari einkunn þeirra og láta eins og GUÐ hafi talað.

Jóhann Elíasson, 2.9.2016 kl. 18:25

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Nákvæmlega Jóhann.

Þakka þér fyrir innlitið og innlegg þitt.

Tómas Ibsen Halldórsson, 2.9.2016 kl. 23:35

3 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Það verður að veiða fiskinn sem gefst og þjónusta ferðamennina sem koma.

Íslendingar eru sérfræðingar í að grípa tækifærið, hvalrekann.

Þetta er allt af því góða. Þegar þetta er fullnýtt, leita þá að næsta tækifæri.

Bankinn lánar aldrei neitt, verðmæti, aðeins bókhald.

Ekkert verður til nema að við hugsum og framkvæmum það.

Það virðist sem einhver biðji um mat á Íslandi og borgar fyrir. Þá fær hann töluna sem hann sættir sig við.

Erlend matsfyrirtæki   Eftir Guðmund F. Jónsson  30. mars 2011 | Aðsent efni | 444 orð | 1 mynd

http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1372910/

Guðmundur Franklín Jónsson:Fitch, Moody‘s ogStandard & Poors 

Skoðanir   06:00 13. APRÍL 2010

http://www.visir.is/gudmundur-franklin-jonsson-fitch,-moody-s-ogstandard--og--poors/article/2010277283821

meira: Þessi matsfyrirtæki leggja einkunnir á þjóðir og sjálfstæð ríki. Hver borgar fyrir það? Bankarnir okkar þrír ....voru með öll þessi fyrir­tæki í vinnu og borguðu matsfyrirtækjunum þremur hundruð milljóna á ári undanfarin ár, fyrir góðar einkunnir."


Jónas Gunnlaugsson, 3.9.2016 kl. 01:32

4 Smámynd: Teitur Haraldsson

"Mistökum okkar" allur hin vestrænni heimur gerði mistök.

Kosturinn við krónuna:
Ef ferðamanna innstreymið minkar, þá fekkur krónan og það verður aftur fýsilegt að koma til Íslands.

Teitur Haraldsson, 3.9.2016 kl. 02:55

5 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Er einfaldlega sammála þér Tómas punktur 

Jónas Ómar Snorrason, 3.9.2016 kl. 11:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 778
  • Frá upphafi: 162071

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 490
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband