Davíð og Golíat

Þegar Davíð mætti Golíat á sínum tíma sagði Davíð, "Þú kemur á móti mér með spjót og lensu, en ég kem í gegn þér í nafni Drottins". Mannlega séð var staða Davíðs vonlaus, en hann vissi að Drottinn var með honum og fór því óhræddur gegn risanum.

Í ágúst 2008, tveim mánuðum fyrir hrun, kom fólk úr ýmsum kirkjudeildum og kristnum trúfélögum hér á landi saman í þeim tilgangi að biðja fyrir þjóðinni og þeirri vá sem steðjaði að. Bankamenn, stjórnmálamenn, hagfræðingar og fleiri sáu ekki að neitt væri að og að hætta væri á ferðum, en þessi hópur kristinna einstaklinga hafði fengið aðvörun um hið gagnstæða.

Frá þeim tíma hefur hópur kristinna einstaklinga komið vikulega saman til að biðja fyrir þjóð okkar og í nafni Drottins hefur okkur sem þjóð tekist að snúa vörn í sókn. Hins vegar megum við ekki láta deigan síga, því viðsjárverðir tímar eru framundan og færi betur ef fleiri tækju sér stöðu og bæðu fyrir landi og þjóð.

 


mbl.is Davíð gegn mörgum Golíötum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 162166

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband