Fólk, líf þeirra og heilsa, heimili þeirra og sveitafélagið þeirra eru aukaatriði í augum sumra stjórnvalda.

Fólk, líf þeirra og heilsa, heimili þeirra og sveitafélagið þeirra eru aukaatriði í augum sumra stjórnvalda. Það á við East Palestin í Ohiofylki í Bandaríkjunum. Það er með eindæmum hversu afskipt íbúarnir og umhverfi þeirra eru af hálfu Biden stjórnarinnar og Norfolk járnbrautanna eftir "óhappið" sem átti sér stað 3.febrúar s.l.

Hið furðulega er að það hafa orðið nokkur járnbrauta "óhöpp" undanfarnar vikur í Bandaríkjunum, en sennilega ekkert eins alvarlegt og í East Palestin.

Enn annað sem vekur furðu mína, og þó, eru allar þær matvælaverksmiðjur sem hafa orðið eldi að bráð á síðastliðnum mánuðum. Svo er það fjöldi alifugla, nautgripa og annarra dýra sem hefur alvarlegar afleiðingar á fæðuöryggi vestan hafs og sennilega víðar.

Eiturefnin sem komust út í náttúruna í Ohio er að spilla gróskumiklu landsvæði sem mun hafa áhrif á fæðukeðjuna í Bandaríkjunum.

Allt þetta gleður hina "ofurríku" sem vilja fækka fólki á jörðinni, þeir tala um að opinskátt, þeir tala um hina óþörfu afætur, það erum við sem ekki fylla þeirra flokk.

Hér fyrir neðan er lítið myndband sem fjallar að litlu leiti um ástandið í East Palestin, meginstraums fjölmiðlanir eru ekki að fjalla um þetta mál.


Hafa íslenskir fjölmiðlar fjallað um þann hörmulega atburð sem átti sér stað 3.febrúar s.l. . . .

. . . í East Palastine í Ohiofylki í Bandaríkjunum ????? og/eða afleiðingarnar sem það er að valda fólkinu sem býr þar.

Bandarískir meginstraumsfjölmiðlarnir fjalla ekki um það, Bandarísk stjórnvöld skipta sér ekki af því, en hvers vegna??? Jú Biden þurfti að fara til Úkraínu með einn milljarð dollara til að leggja í stríðssjóð sinn við Rússa. Bandarískir ríkisborgarar eru ekki nógu mikilvægir til að þörf sé á að sinna þeim. En fólkið er alvarlega veikt, dýrin eru að deyja og landbúnaðarhéraðið ónothæft í marga áratugi eða jafnvel margar aldir. Og þeir sem eru að benda á alvarleika málsins eru úthrópaðir hryðjuverkamenn!!!

Svona eru Bandarísk stjórnvöld í dag!!!!!


Hvað gerðist eftir mótmælin í Kína s.l. haust.

Skildi þetta vera eitthvað sem vestræn stjórnvöld íhuga að gera???


Er Kínverski kommúnistaflokkurinn með Xi í broddi fylkingar að drepa stóran hluta af kínversku þjóðinni ?????

Það er óhugnanlegt sem er að gerast í Kína. Sumir er að átta sig á lyginni sem stjórnvöld beita gegn almenningi, en það virðist nokkuð ljóst að Xi og kommúnistaflokkurinn eru að fækka fólki viljandi. Það eru ekki eingöngu gamalt fólk sem er að hrynja niður heldur einnig ungt og heilbrigt fólk sem veikist skyndilega og deyr á skömmum tíma.

Eigum við eftir að sjá þetta gerast hér á vesturlöngum??? Því miður tel ég að svo muni verða. Davos klíkan, Vilhjálmur Hlið o.fl. stefna að því að fækka fólki, þeir fara ekki í felur með þær áætlanir sínar.

 

Hér er svo annað óhugnanlegt myndband frá Kína.

Ekki kæmi á óvart ef Y-T- lokaði á þessi myndbönd, sjáum til hvort það gerist.


Hluti af því sem er að gerast í Póllandi og Úkraínu, það sem fjölmiðlar eru ekki að fjalla um.

Það er ekki allt sem sýnist, sumt sem ekki má segja frá, en það sem enginn má vita finnur leið til að upplýsast.


Hvað munt þú gera þegar þeir koma eftir þér?

Kínverjar hafa hafist handa við að smala fólki í einangrunarbúðir í nafni kóvid varna. Kínversk yfirvöld hafa haldið mörgum tugum milljóna manna lokuðum inni á heimilum sínum svo vikum skiptir, tugir þúsunda hafa látist af þeim völdum, margir dáið úr hungri. Nú eru Kínversk yfirvöld búin að setja upp sérstakar búðir þar sem útvöldum verður haldið í sérstakri einangrun og hægt verður að fylgjast með þeim daglega, óvíst er hvort þetta fólk eigi nokkurn tíman eftir að komast þaðan lifandi.

Klaus Schwab forsprakki World Economic Forum - WEF - hælir Kínverjum í hástert fyrir yfirgang þeirra og hvernig þeir hafa stjórn á almenningi, hann lýsir þeim sem fyrirmyndar ríki sem aðrir ættu að taka sér til fyrirmyndar. WEF er klúbbur ofurríkra milljarðamæringa, áhrifaríkra stjórnmálamanna og annars frægs fólks sem allt er meira og minna haldið siðblindu á háu stigi.

Hér fyrir neðan er vefslóð á þátt sem kemur lítillega inná það sem hér um ræðir. Efni sem fjallað er um byrjar á 1 mínútu og 47. sekúndu inn í myndbandið. Myndbandið nefnist á ensku: What Will You Do When They Come For YOU? eða Hvað munt þú gera þegar þeir koma eftir þér?

https://www.brighteon.com/9998e39e-c5d5-4af4-b222-d46b60ff7cd4

Afrita þarf vefslóðina og opna í nýjum glugga.


Boðskapur til íslensku þjóðarinnar

Hér fyrir neðan er boðskapur til íslensku þjóðarinnar byggt á orðum Heilagrar Ritningar:

Sjá, hönd Drottins er eigi svo stutt, að hann geti ekki hjálpað, og eyra hans er ekki svo þykkt, að hann heyri ekki. Það eru misgjörðir yðar, sem skilnað hafa gjört milli yðar og Guðs yðar, og syndir yðar, sem byrgt hafa auglit hans fyrir yður, svo að hann heyrir ekki.

Hendur yðar eru blóði ataðar og fingur yðar misgjörðum, varir yðar tala lygi og tunga yðar fer með illsku.

Enginn stefnir fyrir dóm af því, að honum gangi réttlæti til, og enginn á í málaferlum sannleikans vegna. Menn reiða sig á hégóma og tala lygi, þeir ganga með ranglæti og ala illgjörðir. Þeir klekja út hornormseggjum og vefa köngulóarvefi. Hverjum sem etur af eggjum þeirra er dauðinn vís, og verði eitthvert þeirra troðið sundur, skríður úr því eiturormur.

Vefnaður þeirra er ónýtur til klæða, og það sem þeir vinna verður eigi haft til skjóls: Athafnir þeirra eru illvirki, og ofbeldisverk liggja í lófum þeirra.

Fætur þeirra eru skjótir til ills, og fljótir til að úthella saklausu blóði. Ráðagjörðir þeirra eru skaðræðisráðagjörðir, eyðing og tortíming er á vegum þeirra. Veg friðarins þekkja þeir ekki, og ekkert réttlæti er á þeirra stigum. Þeir hafa gjört vegu sína hlykkjótta, hver sá, er þá gengur, hefir ekki af friði að segja.

Fyrir því er rétturinn fjarlægur oss og réttlætið kemur ekki nálægt oss. Vér væntum ljóss, en það er myrkur, væntum dagsbirtu, en göngum í niðdimmu.

Vér þreifum fyrir oss, eins og blindir menn með vegg, fálmum eins og þeir, sem misst hafa sjónina. Oss verður fótaskortur um hábjartan daginn eins og í rökkri, í blóma lífsins erum vér sem dauðir menn.

Vér rymjum allir sem birnir, kurrum eins og dúfur. Vér væntum réttar, en hann fæst ekki, væntum hjálpræðis, en það er langt í burtu frá oss.

Afbrot vor eru mörg frammi fyrir þér og syndir vorar vitna í gegn oss, því að afbrot vor eru oss kunn og misgjörðir vorar þekkjum vér.

Vér höfum horfið frá Drottni og afneitað honum og vikið burt frá Guði vorum. Vér höfum látið oss ofríki og fráhvarf um munn fara, vér höfum upphugsað og mælt fram af hjarta voru lygaorð.

Og rétturinn er hrakinn á hæl, og réttlætið stendur langt í burtu, því að sannleikurinn hrasaði á strætunum og hreinskilnin kemst ekki að.

 

Leitið Drottins, meðan hann er að finna, kallið á hann, meðan hann er nálægur!

Hinn óguðlegi láti af breytni sinni og illvirkinn af vélráðum sínum og snúi sér til Drottins, þá mun hann miskunna honum, til Guðs vors, því að hann fyrirgefur ríkulega.

Já, mínar hugsanir eru ekki yðar hugsanir, og yðar vegir ekki mínir vegir - segir Drottinn.

Heldur svo miklu sem himinninn er hærri en jörðin, svo miklu hærri eru mínir vegir yðar vegum og mínar hugsanir yðar hugsunum.

Snúið yður til mín og látið frelsast, þér gjörvöll endimörk jarðarinnar, því að ég er Guð og enginn annar.

Gjörið því iðrun og snúið yður, að syndir yðar verði afmáðar.

Það orð er satt, og í alla staði þess vert, að við því sé tekið, að Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn,

Guð sendi ekki soninn í heiminn til að dæma heiminn, heldur að heimurinn skyldi frelsast fyrir hann.

En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist.

En öllum þeim, sem tóku við honum [Jesú] gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim, er trúa á nafn hans.

Svo sannarlega sem ég lifi, - segir Drottinn Guð - hefi ég ekki þóknun á dauða hins óguðlega, heldur að hinn óguðlegi hverfi frá breytni sinni og haldi lífi. Snúið yður, snúið yður frá yðar vondu breytni! Hví viljið þér deyja, Ísraelsmenn [Íslendingar]?

Snúið yður til mín og látið frelsast, þér gjörvöll endimörk jarðarinnar, því að ég er Guð og enginn annar.

 


Dóu skyndilega!!!

Þegar við heyrum af átökunum í Úkraínu og fjölda almennra borgara myrta á hroðalegan hátt eða hryllileg ofbeldi sem fólk verður fyrir, hugsum við "hvert stefnir heimurinn", okkur er um og ó okkur er ekki sama, hryllingur.

En hvernig má það vera að okkur þykir ekkert að því að ofurríkt fólk haldið hreinni illsku hafa hafið stríð gegn jarðarbúum þar sem gríðarlegur fjöldi fólks hefur dáið að ástæðulausu, börn deyja í móðurlífi eða jafnvel í örmum móður sinnar og hundruð þúsunda ef ekki milljónir hafa hlotið alvarlegan líkamlegan skaða af gjörðum siðspilltra ofurríkra aðila sem telja okkur almenna borgara vera fyrir sér og spilla jörðinni fyrir þeim????

Af hverju erum við svo blind að sjá ekki í gegnum blekkingarnar sem hafa dunið yfir okkur nú í nærri þrjú ár??????

Hér fyrir neðan er vefslóð á myndband þar sem fjallað um skyndilegan dauða - DIED SUDDENLY. Myndband þetta er ekki fyrir börn að horfa á og jafnvel ekki fyrir viðkvæma. En fólk þarf að horfa á og hlusta með opnum huga til að gera sér grein fyrir því sem er í gangi.

Þar sem þetta myndband fæst ekki sýnt á youtube þá þarf að afrita vefslóðina og opna í nýjum glugga.

https://rumble.com/v1wac7i-world-premier-died-suddenly.html

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 348
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 210
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband