Ég tek ofan fyrir Ögmundi

Það er virðingarverð af Ögmundi Jónassyni að segja af sér og standa þar með á sannfæringu sinni í þessu mjög svo umdeilda máli.  Ekki þætti mér ólíklegt að það spili einnig inní sársauka-fullur niðurskurður heilbrigðiskerfisins sem hann hefur þurft að takast á við.

Nú þarf Jóhanna bara að ganga á fund ORG og segja af sér líka, ásamt öllu sínu ráðuneyti.

Ef ekki verður gengi til kosninga nú í haust, væri best að mynda ríkisstjórn allra flokka að frátalinni Samfylkingunni.  Slík stjórn myndi koma miklu meira í verk, en sú sem nú riðar til falls.

 


mbl.is Ögmundur segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skoðum nú staðreyndir málsins:

1. Ögmundur hefur aldrei verið sáttur við Icesave-leiðina

2. Ögmundur er formlega formaður BSRB en á morgun verður kynntar harkalegar leiðir til niðurskurðar í heilbrigðis- og ríkiskerfinu. Þar mun formaður BSRB skamma heilbrigðisráðherra.

Ögmundur gerði það sem því miður gerist stundum. Hann henti sér um borð í brimskaflinn. Hafði ekki þor að sigla með.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 30.9.2009 kl. 13:27

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Heldurðu Gísli að Ögmundur sé sá eini innan VG sem er ósáttur við Icesave ? Af hverju heldurðu að Jóhanna hafi talað með efasemdarröddu um ný úrræði í því máli öllu ?  Getur verið að Samfylkingin sé að einangrast í Icesave-málinu, aðildarumsókninni að ESB og afstöðunni til AGS ?

Það kæmi mér ekki á óvart að innan viku verði ný ríkisstjórn tekin við völdum og í stjórnarandstöðu verði Samfylkingin ein og einmanna.

Almenningur er farinn að sjá og átta sig á því úr hverju Samfylkingin er gerð og að ekki er hægt að reiða sig á þann flokk.

Tómas Ibsen Halldórsson, 30.9.2009 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 161162

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband