Sókn til betra samfélags

Fyrirsögnin hér að ofan er yfirskrift flokksstjórnarfundar Samfylkingarinnar sem haldinn verður í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ á morgun, laugardaginn 26.september.

Á flokksstjórnarfundinum mun Árni Páll Árnason,  félags-  og tryggingamálamálaráðherra tala um efnið "Staða heimilanna- aðgerðir ríkisstjórnarinnar".

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra mun tala um efnið "Sóknarfæri í íslensku atvinnulífi".

Þá verða eftirtalin umræðuefni ennfremur á dagskrá:

Ný tækifæri í sókn til betra samfélags. Aukinn jöfnuður með breyttri skattastefnu
Stefán Ólafsson prófessor í félagsfræði Háskóla Íslands

Mikilvæg samfélagsleg áhrif jöfnuðar
Jón Gunnar  Bernburg, dósent  í félagsfræði Háskóla Íslands

Hvernig stöndum við vörð um og styrkjum börnin á erfiðum tímum sem þessum?
Hrefna Ólafsdóttir yfirfélagsráðgjafi BUGL og aðjúnkt við Háskóla Íslands

Nýjar áskoranir og tækifæri í íslensku atvinnulífi
Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins

Mér er spurn, hvað hefur komið fyrir Samfylkinguna eiginlega ? Hvar hefur þetta fólk verið undanfarna mánuði ? Hvað hafa þau verið að hugsa ? Hvað hafa þau verið að gera ?

Er Samfylkingin að undirbúa kosningar ?

Samfylkingin hefur hvorki haft dug eða kjark til að takast á við neitt af því sem fjalla á um á umræddum flokksstjórnarfundi, þrátt fyrir að hafa haft tækifæri til þess í nærri átta mánuði og þrátt fyrir að kallað hafi verið eftir aðgerðum á flestum þessum sviðum allan þann tíma sem Fylkingin er búin að vera við stjórn, þau hafa haft öll ráð í hendi sér.

En, já, ég var nærri búinn að gleyma, Samfylkingin stundar bara umræðu-stjórnmál og auðvitað er það það sem gera á á morgun, en framkvæmda-stjórnmál hefur Samfylkingin ekki verið þekkt fyrir og á ég ekki von á neinni breytingu þar á.

Sennilega er Samfylkingin bara að undirbúa kosningar, aðra daga skipta þessi mál Fylkinguna ekki máli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 64
  • Frá upphafi: 161288

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband