Seðlabankinn rústar stöðugleikasáttmálanum

Það virðist ekki vera neinn vilji, hvorki af hálfu Seðlabankans eða ríkisstjórnarinnar, að virða eða viðhalda stöðugleikasáttmálanum sem undirritaður var snemma sumars með pompi og prakt.  Í sjónvarpsfréttum í gærkveldi mátti sjá greinilegan meiningarmun á milli ríkisstjórnar-innar og formanns ASÍ hvað umræddan sáttmála varðar.  Forsætisráðherra lýsti mikilli ánægju með hvað þau eru að gera góða hluti, á meðan Gylfi Arnbjörnsson var mjög varfærinn í yfirlýsingum sínum, en greina mátti mikil vonbrigði hjá honum með gang mála hjá ríkisstjórninni, stjórninni sem þó var honum að skapi er hún var mynduð.

Staðreyndin er sú að ríkisstjórnin er ekki að gera neitt, alla vega ekki neitt af viti.  Vonbrigði fólks verður æ meiri með hverjum deginum og blasir uppgjöf við víða.

Svo kemur Seðlabankinn og stráir salti í sárin með því að gera ekki neitt í vaxtamálum.  Stýrivaxtastefna Seðlabankans er úrelt og úr sér gengin, hún gerir ekkert gagn en mikið ógagn.  Ekki kæmi mér á óvart ef mörg fyrirtæki gefist hreinlega upp nú um mánaðamótin og fjöldi uppsagna líti dagsins ljós.  Ábyrgðin skrifist á ríkisstjórnina og Seðlabankann.

 

ÁFRAM ÍSLAND - EKKERT ESB

ÁFRAM ÍSLAND - BURT MEÐ ICESAVE

ÁFRAM ÍSLAND - BURT MEÐ AGS


mbl.is Stýrivextir áfram 12%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband