Lausn efnahagsmála eru skattahækkanir

Eina leiðin sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sér til að koma í veg fyrir algert efnahagshrun, sem myndi gera það að verkum að bankarnir færu endanlega á hausinn, krónan yrði verðlaus og gengi hennar ekki skráð og til að bjarga ríkissjóði frá endanlegur hruni, er að skattpína þjóðina svo að algert efnahagshrun blasir við, bankarnir fara endanlega á hausinn, krónan verður verðlaus og gengi hennar ekki skráð og ríkissjóður hrynur endanlega ásamt heimilunum og fyrirtækjunum í landinu.

Þetta kallast að slá skjaldborg um heimilin og fyrirtækin.  Þegar Jóhanna sagði fyrir kosningar að slá ætti skjaldborg um heimilin og fyrirtækin, misskildu allir það sem Jóhanna var að segja, hún var í raun að segja okkur það að það ætti að gera alla eignalausa.  Nú er ríkisstjórnin á góðri leið að takast það ætlunarverk sitt.  Almenningur hélt að það ætti að bjarga heimilum og fyrirtækjum, en það var bara tómur misskilningur.

Ríkisstjórnin vinnur að því hröðum skrefum að færa okkur aftur til níundu aldar, 874 eða þar um bil, þegar menn hjuggum mann og annan og þegar þrælahald var algengt og viðurkennt.

 


mbl.is Miklar skattahækkanir í farvatninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyr heyr!

Maður spyr sig nú:hversu mikið er hægt að hækka skatta á almenna borgara áður en eins og þú segir allt fer í vaskinn.  Það er hreinlega stefnt að því að koma ÖLLUM á hausinn og það með stæl.

Óskin (IP-tala skráð) 21.9.2009 kl. 17:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 161293

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband