Gjaldeyrishöft hugsanlega nokkur ár í viðbót

Guðlaugur Þór Þórðarson sagði á þingi í dag: „Ef gengið styrkist meira en um 30% þá verða nýju bankarnir gjaldþrota“.  Með öðrum orðum, ef á að bjarga bönkunum þá mega fyrirtækin og heimilin fara veg allrar veraldar.  Það er ómögulegt að heimilin og fyrirtækin geti staðið undir svo lágu gengi til lengdar, en það er eins og ríkisvaldinu sé alveg sama, "ESB mun bjarga öllu" hvort sem er.

 


mbl.is Gjaldeyrishöft hugsanlega nokkur ár í viðbót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Púkinn

Mér sýnist þú gleyma því að lágt gengi hentar íslenskum útflutningsfyrirtækjum vel (nema lélegir stjórnendur hafi skuldsett þau un of)

Lágt gengi þýðir að útflutningfyrirtækin fá mun fleiri krónur fyrir dollarana og evrurnar sem þau afla, sem aftur ætti að auðvelda þessum fyrirtækjum að eflast, stækka og skapa ný störf.

Púkinn, 14.7.2009 kl. 17:23

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Rétt er það Friðrik að lágt gengi gefur útflutningsgreinum fleiri krónur í kassann, en innflutningur verður dýr, stýrivextir og verðtrygging mun haldast há, það kemur heimilum og fyrirtækjum, jafnvel útflutnings fyrirtækjum, illa. 

Mín skoðun er sú að gengi krónunnar var allt of hátt skráð og í allt of langan tíma, það kom sér illa fyrir útflutningsfyrirtækin og ferðaþjónustuna.  Við megum ekki hendast öfganna á milli það verður að finna réttan milliveg sem hentar þjóðfélaginu í heild.

Talandi um hátt skráð gengi þá er rétt að minnast á það að Evran, sem svo margir vilja taka upp, er allt of hátt skráð.  Sá tími mun koma að Evran mun falla og þegar það gerist mun allt fara á annan endann í henni Evrópu.  Hin háa skráða Evra er að fara mjög illa með mörg lönd innan ESB, það sama mun gerast þegar hún mun falla á bilinu 15 til 25% að mínu áliti, það mun hafa mjög alvarlegar afleiðingar.  Hvenær það mun gerast þori ég ekki að spá fyrir um, en ég trúi því að þess sé ekki ýkja langt að bíða.  Ef við verðum komin inn í ESB þegar það gerist munum við ganga í gegnum annað hrun, það yrði skelfilegt.

Tómas Ibsen Halldórsson, 14.7.2009 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 47
  • Sl. viku: 770
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 484
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband