Hvrerjir eru veruleikafirrtir ?

Ríkisstjórnarflokkunum virðist vera fyrirmunað að sjá vandann sem blasir í þjóðinni.  Það er sama hvert litið er í málflutningi ríkisstjórnarinnar, allsstaðar á öllum vígstöðvum er veruleikafirring ríkisstjórnarinnar alger.  Forsætir- og fjármálaráðherra standa í fjarska og horfa á Róm (Ísland) brenna.  Fyrirtækin, eitt af öðru yfirtekið af bönkunum sem eru í eigu ríkisins, þau fyrirtæki sem bankarnir eru ekki að yfirtaka verður gert ókleift að starfa, heimilin lögð í rúst og fólk á bara að leita til Ráðgjafaþjónustu heimilanna.  Á Ráðgjafaþjónusta heimilanna að útvega heimilunum fé til að lifa af ?  ætlar ríkisstjórnin að opna súpueldhús þar sem heilu fjölskyldurnar geta komið og fengið máltíð, einu sinni á dag ? 

Sjávarútvegsráðherra er tilbúinn að leggja sjávarútveginn í rúst, forsætis- og utanríkisráðherra ætla að selja fullveldi þjóðarinnar í hendur erlendra aðila, heilbrigðisráðherra sér til þess að sjúklingar fái ekki lyf sem eru þeim nauðsynleg, menntamálaráðherra leggur áherslu á að klára tónlistarhús sem enginn kemur til með að geta notið og leggur til tugi milljarða til verksins, iðnaðarráðherra heldur aftur af því að hægt sé að hefjast handa við atvinnuuppbyggingu í Helguvík og á Bakka, með hjálp umhverfisráðherra reyndar.  Viðskiptaráðherra er svo upptekinn við að vera faglegur að raunveruleg vandamál skipta hann ekki máli.  Félagsmálaráðherra er svo upptekinn af því að vera orðinn ráðherra að hann veit ekki hvað hann á af sér að gera.

Svona má lengi telja, hvar er þá veruleikafirringin ef ekki hjá ríkisstjórninni ?  Woundering

 


mbl.is Veruleikafirrtur grátkór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 161258

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband