Jóhanna hafnar heimilum og fyrirtækjum um hjálp

Í framboðsræðu sinni á aukaársfundi ASÍ, sem haldinn er til að gefa Sandfylkingarfólki tækifæri á að láta ljós sitt skína, lýsir heilög Jóhanna því yfir að hún hafni heimilum og fyrirtækjum landsins um hjálp.  Er það skjaldborgin sem hún talaði svo fjálglega um í byrjun febrúar ?

 


mbl.is Hafnar flatri niðurfærslu skulda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eðvarð Hlynur Sveinbjörnsson

Maður þarf nú ekki að vera neinn snillingur til að sjá það að hún er að segja þarna að þessar tvær aðferðir séu ekki skynsamar, get ekki séð að hún sé að lýsa því yfir að hún ætli ekkert að gera hmmm....

Eðvarð Hlynur Sveinbjörnsson, 25.3.2009 kl. 11:25

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Hún hefur nú haft tíma til að koma með tillögur til bjargar heimilum og fyrirtækjum, meira að segja er stjórnarandstaðan tilbúin að liðka til svo að slík hjálp megi fá brautargengi, en það bólar bara ekki á neinu.  Það er þó einn úr Vinstri grænum sem hefur komið með tillögu áþekka þeim sem komu frá Framsókn og Tryggva Þór.  Gæti hugsast að Jóhanna og Steingrímur hlusti á hagfræðinginn Lilju Mósesdóttur ?

Tómas Ibsen Halldórsson, 25.3.2009 kl. 11:34

3 Smámynd: Hrannar Björn Arnarsson

Sæll

Þér til fróðleiks birti ég yfirlit yfir þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur þegar samþykkt fyrir sitt leiti. Þær virðast hafa farið framhjá þér ef marka má skrif þín hér að ofan.

Aðgerðir til stuðnings skuldsettum heimilum

 
  1. Skuldajöfnun verðtryggðra lána – 10-20% lægri greiðslubyrði en ella
  2. Frysting og í framhaldi skuldajöfnun gengisbundinna lána – 40-50% lægri greiðslubyrði
  3. 25% hækun vaxtabóta – hjón með 3-8 milljóna árstekjur hækka um rúm 170 þús, úr 314 þús í 487 þús á ári.
  4. Útgeiðsla séreignasparnaðar – milljón á einstakling, tvær milljónir á hjón
  5. Greiðsluvandaúrræði Íbúðalánasjóðs stórefld og samkomulag gert við aðrar fjármálastofnanir um að sömu úrræði gildi þar einnig.
    1. Skuldbreytingalán og lánalengingar um 30 ár í stað 15 áður
    2. Heimild til að greiða bara vexti og verðbætur af vöxtum og frysta höfuðstól í allt að 3 ár.
    3. Heimild til að frysta afborganir í allt að 3 ár.
    4. Ýmsar mildari innheimtuaðgerðir
  6. Greiðsluaðlögun samningskrafna
  7. Lækkun dráttavaxta
  8. Skuldfærsla barnabóta uppí skattaskuldir bönnuð
  9. Skuldfærsla hverskonar inneigna hjá ríkinu uppí afborganir Íbúðalánasjóðs afnumdar
  10. Frestun nauðungaruppboða fram til loka ágúst
  11. Lenging aðfarafresta úr 15 dögum í 40
  12. Aukin stuðningur aðstoðarmanns og leiðbeiningaskylda vegna gjaldþrota
  13. Greiðsluaðlögun fasteingaveðlána
  14. Heimild til Íbúðalánasjóðs til að leigja fyrri eigendum húsnæði sem sjóðurinn eignast á uppboðum.

kveðja góð,

Hrannar Björn Arnarsson, 25.3.2009 kl. 12:15

4 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Sæll Hrannar

Flestar þessar aðgerðir eru eingöngu til þess fallin að fresta vandanum.  25% hækkun vaxtabóta er góðra gjalda verð, en mun ekki nýtast fólki fyrr en í haust.  Útgreiðsla séreignasparnaðar gengur allt of skammt, upphæð allt of lág. Ber þess að geta að 37,2% upphæðarinnar fer beint í ríkiskassann og rest dreifist á níu mánuði, kemur þar af leiðandi að takmörkuðu gagni til að borga niður skuldir.  Lækkun dráttarvaxta, þvílík hamingja, meðan þeir vextir eru enn vel yfir 20%.  Frestur nauðungaruppboða og hvað þá ? 

Ég get því miður ekki séð að ríkisstjórnin hafi tekið á vanda fjölskyldna af alvöru, sumt er í áttina annað fálmkennt.

Bestu kveðjur,

Tómas Ibsen Halldórsson, 25.3.2009 kl. 12:32

5 Smámynd: Ellert Júlíusson

Og enn minnir Hrannar á hversu fallega ríkisstjórnin gengur fram í að legja í skuldabagga og hengingaról einstaklinga. Sérstaklega þó að hún hafi leyft þeim að taka þá peninga sem þeir hafa sjálfir lagt fyrir í séreignasjóði til að bjarga sér úr vandanum. Hvað ætli ríkið fái marga milljarða í tekjur af þeim gjörningi, haldið þið að þetta sé gert af góðmennsku?

Ellert Júlíusson, 25.3.2009 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 161293

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband