Þorbjörn hf. kaupir glæsilegt skip og er nefnt eftir Todda Valda stofnanda Þorbjarnarins og framkvæmdastjóra fyrirtækisins lengi vel.

Glæsilegt fyrirtæki Þorbjörn bætir glæsilegu skipi í flota sinn sem nefnt verður eftir Tómasi Þorvaldssyni stofnanda og framkvæmdastjóra fyrirtækisins til margra ára.

Til hamingju Þorbjörn og frændfólk.

Sisimiut í Hafnarfirði. Nú á að mála togarann í liti ...


mbl.is Tilhlökkun að taka við Tómasi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brostnar vonir ???

Ég tel að mörgum hafi verið það ljóst strax í upphafi uppsveiflu ferðaiðnaðarins að fyrr eða síðar myndi botninn detta úr og margir standa eftir stór skuldugir eða gjaldþrota.

Við þurfum ekki vera hissa þótt verulega dragi úr komu ferðamanna til landsins, græðgisvæðingin hefur séð til þess. Ísland er eitt dýrasta land í heimi til að ferðast til. Þó svo að WOW hafi skilað okkur mörgum ferðamanninum á ódýrum fargjöldum er það ekki síst græðgisvæðingin innanlands sem situr í fólki sem hingað hefur komið.

Hótel, airbnb og veitingastaðir hafa sprottið upp eins og gorkúlur út um allt og allir ætluðu að græða stórt. Minnir helst á loðdýraræktina og laxeldið sem allir ætluðu að græða á en margir fóru illa út úr.

Hvað ætla menn svo að gera við öll glæsihótelin sem sprottið hafa upp og flest þeirra nánast á sama blettinum í Reykjavík??? hýsa flóttamenn??? nota það sem heimili fyrir eldri borgara???? eða hýsa þá sem hafa lent á götunni einhverra hluta vegna??????

Vilji menn standa vörð um ferðamannaiðnaðinn þarf breytt hugarfar okkar á meðal. Sýnum sanngirni í verðlagningu í garð ferðamanna, hættum að horfa á þá sem féþúfu sem hægt er að græða á um stundarsakir.

Við getum sjálfsagt ekki selt þjónustu okkar jafn ódýrt og þeir sem ódýrastir eru, en haf og himinn er á milli þess sem hinir ódýru bjóða þjónustu sína á og græðginnar sem hér ríkir.

 


mbl.is Vonir sem virðast bresta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Júní 2019
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 161293

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband