Eru loftslagsmálin stærsta vá nútímana???

Stærsta vá nútímans snýr ekki að loftslagsmálum. Stærsta vá nútímans er sá heilaþvottur sem á sér stað og þá fyrst og fremst beittur gegn ungu fólki og börnum. Pólitískur rétttrúnaður er látinn dynja á fólki í tíma og ótíma.

Svo kallaða "loftslagsvá" er bara eitt af þeim þrýstingi sem látið er dynja á fólki í dag. Fólk og fyrirtæki eru rukkuð fyrir svo kölluð kolefnisspor. Ótrúlegum fjármunum er hent í einhvern sjóð erlendis sem enginn veit hvað verður um, alla vega eyða þessir fjármunir ekki kolefnissporunum, svo er víst.

Börn fara í skólaverkföll, mæta ekki í skóla til að mótmæla koltvísýringnum í loftinu. Þeim er talið trú um að heimurinn mun líða undir lok eftir fáein ár, en hvers vegna þá að mæta aftur í skólann????? Síðan að vori er búið að panta utanlandsferðir til að fagna útskrift, þ.e. þeir sem það gera eða að fara með foreldrum sínum í sólalandaferðir, ekki má sleppa því!!!!!

Ekki virðast ráðherrar ríkisstjórnarinnar, forsætisráðherra þar með talin, veigra sér við að þeytast milli landa í þotum sem sagt er að spúi miklum koltvísýringi út í andrúmsloftið. Af hverju nota þau ekki sömu aðferð og Greta sænska og sigla á skútu, andrúmsloftsins vegna?????????

Næst þegar forseti vor og frú hans fara í opinbera heimsókn út á land hljóta þau að fara hjólandi, ekki má notast við bensínspúandi bifreið til þess arna!!

Hafa stjórnvöld komist að niðurstöðu um það hvernig loka megi fyrir allt það CO2 sem stígur upp úr eldfjöllum þessa lands??? Hvað gerir ESB í þeim tilfellum þar sem í mánuði hverjum fleiri, fleiri trukkar eru notaðir til að flytja gögn á milli Brussel og Salzburgar fram og til baka þegar ESB þingið kemur saman????

Hræsnin í kringum þessa "loftslagsvá" er alger og fara ráðherrar ríkisstjórnar okkar þar fremstir í fararbroddi.

 


mbl.is Loftslagsváin stærsta málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er raunverulega að gerast í Svíþjóð, Geta? Spurt og svarað á meðfylgjandi myndbandi.

Er hugsanlegt að margt af því sem fram kemur í myndbandinu eigi einnig við hér á landi, Íslandi?


Einhver mesti hryllingur mannkynssögunnar á sér stað á okkar dögum. Það þarf ekki að fara langt til að sjá slíkt, það gæti jafnvel verið að gerast hér okkar á meðal í okkar landi, en vonandi ekki.

Dr. Michael Brown ræðir við Mat Staver. Mat er lögfræðingur sem er að verja konu sem upplýsir einhverja þá hræðilegustu hluti sem verið er að gera og vafamál er hvort Nazistar komist með tærnar þar sem Planed Parenhood eru með hælana í ýmsu sem þar fer fram. Á 45mínútna tímapunkti myndbandsins hefst umræðan sem lýsir þeim hryllingi sem á sér stað. Mér er spurn, á þetta sér stað hér á landi? aldrei höfum við fengið að vita hvað verður um börnin sem deydd eru í móðurlífi hér á landi.

Farið á 45mínútu myndbandsins og hlustið. Einnig er upplýsandi það sem Mat segir fram að þeim tímapunkti, en þar fjallar hann um annað málefni.

 


Falskar fréttir, CNN og íslenskir "fréttamiðlar".

Það er ekkert skrítið að allt sem Trump gerir, hvort heldur það sé gott eða slæmt, þá verður hann fyrir ótrúlegum árásum pólitískra andstæðinga sinna, hvort heldur þeir séu Demókratar eða Repúblikanar, því þeir geta með engu móti sætt sig við að hann hafi verið kosinn forseti Bandaríkjanna.

Þegar menn hafa engar áþreifanlegar ásakanir gegn honum þá búa þeir bara til ásakanir svo hægt sé að ákæra hann og koma honum úr embætti. Andstæðingar hans hafa ekki áttað sig á því að ekkert hrín á honum, hann bara styrkist við mótbyrinn sem mætir honum.

Það er fyndið að sjá á youtube samantektir úr svokölluðum fréttum á hinum ýmsu svo kölluðu "fréttamiðlum" þar sem fjallað er um sama málið með nákvæmlega sama orðalagið á öllum "fréttamiðlunum".  Málið er að sex aðilar, meira og minna nátengdir, eiga nánast alla svo kallaða "fréttamiðla".

Nú í vikunni var CNN opinberað sem Fake News fréttastöð, sjá vefslóðina hér fyrir neðan en fyrrum starfsmaður CNN náði á myndbandi fyrirmæli Jeff Zucker sem er yfirmaður þeirrar stofnunar hvaða áherslur á að leggja í "fréttaflutningi" þeirrar stofnunar, þ.e. að ráðast á Trump númer eitt. Fleira athyglisvert kemur fram á þessum upptökum sem öll benda á hið sama.

Trump hefur riðlað áætlunum heimselítunnar sem þó reyna hvað þeir geta að snúa öllu á hvolf með mýtunni um loftslagsbreytingar af mannavöldum svo eitthvað sé nefnt, þeir fara sjálfir ekki eftir því sem þeir vilja að allir aðrir geri. Trump er þeirra mesta ógn.

Íslensk stjórnvöld og íslenskir "fréttamiðlar" eru allir undir sama hatti, taka virkan þátt í vitleysunni og flytja okkur Fake News.


Hvernig verða ísaldir til og hvað veldur síðan hlýnun???

Í myndbandinu hér fyrir neðan er leitast við að útskýra hvað veldur hlýinda og kuldaskeiðum.

Erindi Steven F. Hayward, sem hlusta má á og sjá hann flytja á myndbandinu hér fyrir neðan, nefnist "A Funny Thing Happened on the Way to Global Warming".


Vinsamlegast komið þessum boðskap áfram.

500 vísindamenn sendu aðalritara Sameinuðu þjóðanna bréf þar sem þeir segja að ástæðulaust sé að óttast loftslagsvá af mannavöldum.

Látið Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og alla hina krakkana vita af þessu.


Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Okt. 2019
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 211
  • Sl. viku: 711
  • Frá upphafi: 161987

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 450
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband