Allir einstaklingar eiga rétt á að lifa, einnig þeir sem ekki eru fullkomlega eins og við hin.

Fólk sem fæðist með downs er fullkomlega eðlilegt fólk, fólk sem elskar, gefandi og full af lífi. Þetta eru dýrmæti einstaklingar sem hafa góð áhrif á okkur sem ekki erum jafn heilbrigð og þau.

 


mbl.is Við erum að eyða fóstrum vegna viðhorfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki að ófyrirsynju að Guðs Orð, Biblían, vari við slíkri hegðun.

Lauslæti og óeðlileg kynmök valda kynsjúkdómum, þetta þarf ekki að koma neinum á óvart.  Það er ekki að ófyrirsynju að Guðs Orð, Biblían, vari við slíkri hegðun.


mbl.is Aukning á kynsjúkdómum áhyggjuefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komugjald ætti að vera notað, eingöngu, til að fjármagna björgunar og leitarstarf ferðamanna sem lenda í ógöngum. Það mætti kalla gjaldið tryggingu.

Komugjald á hvern fullorðinn ferðamann ætti að vera 1.000 krónur.  Umrætt komugjald ætti að vera trygging sem fara ætti óskipt í sjóð sem myndi fjármagna leitar og björgunarstörf vegna erlendra ferðamanna þegar þörf er á.

Þessi sjóður ætti að ganga til björgunarsveita og annan kostnað sem til fellur þegar þarf að leita að eða bjarga ferðamönnum í ógöngum.  Kostnaður vegna útkalls þyrlu Landhelgisgæslunnar ætti að vera þar innifalinn.

Komugjald ætti að vera notað, eingöngu, til að fjármagna björgunar og leitarstarf ferðamanna sem lenda í ógöngum. Það mætti kalla gjaldið tryggingu.


mbl.is Komugjald gæti skilað milljörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem Demókratar hafa haft um James Comey að segja

Demókratar hatast út í Trump hvort heldur hann reki yfirmann FBI eða ekki.

Hvað sem Trump gerir þá er allt ómögulegt í augum Demókrata, minnir helst á það sem sjá má á Alþingi Íslendinga. "Hate him if he does and hate him if he doesn't"

 


Er eitthvað til eftir þetta líf? er himnaríki til? hvað bíður okkar eftir að þessu lífi líkur?

Colton Burpo var fjögurra ára er hann næstum lést eftir að botnlangi hans sprakk. Colton upplifði að yfirgefa líkama sinn og sitja í fanginu á Jesú. Það sem vekur hvað mesta furðu við sögu hans er sú staðreynd að hann gat sagt frá hlutum sem hann hafði aldrei heyrt um áður og séð hluti sem hann ætti ekki getað hafa séð.

Colton sá systur sína á himnum, en móðir hans hafði misst fóstur áður en hann fæddist. Foreldrar hans höfðu aldrei sagt honum frá því að móðir hans hafi misst fóstur og reyndar vissu þau ekki hvort kynið það var þar sem það gerðist svo snemma á meðgöngunni.

Himininn er raunverulegur staður, "Heven if for real" er bók sem fjallar um þennan atburð, bók sem ég á og hef lesið. Fyrsti hluti myndbandsins hér fyrir neðan er brot úr samtali við Burpo fjölskylduna þar sem komið er inná þessa atburði.

Það sem ég vildi leggja áherslu á er systirin á himnum. Margir, jafnvel læknar, segja að fóstur snemma á meðgöngu sé ekkert nema einhverjar frumur, en saga Coltons segir okkur að um einstakling, persónu, er að ræða.

Hvað varðar líf eftir dauðann, þá sagði Jesús: "Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi og hver sem lifir og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja". Jóhannes 11;25-26.

Ég hvet þig til að horfa á myndbandið og hlusta á það sem þar kemur fram.

 

 

 


Múslímsk kona segir skoðun sína á Ísrael

Sjá myndbandið hér fyrir neðan. Enskur texti fylgir.


"Innviðagjald" hvað??????

Er borgarstjóri og meirihluti hans ekki í takt við raunveruleikann??? Lifir þetta fólk í einhverri draumsýn??????  Á endalaust að bæta gjöldum á húsnæði þannig að fólk verði sett í þrældóm við að koma þaki yfir höfuð sér?????????

Hvað er orðið af jafnaðarmennskunni í Samfylkingunni, er hún dauð, horfin að engu orðin????????  Eða er jafnaðarmennskan bara fyrir suma???? það er þá sem hafa nóg af peningum milli handanna og halda stjórnmálamönnum á spenanum?????

Er meira um vert að gera peningaöflunum til hæfis á kostnað almennings, þ.e. kjósenda??????  Það er kannski rétt áliktað hjá stjórnmálaöflunum, kjósendur ganga alltaf til sömu spýju sinnar þegar að kosningum kemur, búnir að gleyma sviknum loforðum stjórnmálamanna.  Þeir virðast líta svo á að endalaust sé hægt að ganga í vasa "fáfróðra" kjósenda. 

Er ekki kominn tími til að gefa þessu fólki frí og láta aðra sem ekki eru bundnir duttlungum fjármagnseigenda taka við?????????????


mbl.is Mun þrýsta upp íbúðaverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Maí 2017
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband