Bankarnir taka ómakið af ríkisstjórninni

Íslandsbanki á heiður skilið fyrir það frumkvæði sem þeir sýna með því að ætla að leiðrétta húsnæðislánin, bæði þau gengistryggðu og verðtryggðu.  Þetta er það sem Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, hefði átt að hafa forystu um að framkvæma.  Hætt er við því að nú verði lántakendum mismunað eftir því hvar þeirra viðskipti liggja.  Hefði ríkisstjórnin gengið í málið og séð til þess að það sama gilti fyrir alla, yrði allri tortryggni eytt, en nú er hætt við því að aðgerðir bankanna muni leiða til ójöfnuðar.

Nú aftur á móti stendur upp á ríkisstjórnina að koma því til leiðar að fólk þurfi ekki að borga skatt af þeim upphæðum sem lán þeirra verða leiðrétt um, það yrði nú til að kóróna allt ef ríkið færi að ganga eftir slíkum skattgreiðslum.

Að lokum vil ég þakka Íslandsbanka fyrir frumkvæði þeirra (þó svo ég sé ekki með neitt lán hjá þeim) og vil hvetja bankann til að framkvæma þessar niðurfærslur almennilega þannig að það komi að verulegu gagni, ganga alla leið en ekki taka einhver hænuskref sem engu skilar.

 


mbl.is Höfuðstóll lána verði lækkaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þær aðgerðir sem stjórnvöld (fyrrverandi stjórn xD og xS) hafa þegar gripið til, þ.e.a.s. að ábyrgjast öll innlán og spýta 200 milljörðum af skattfé inn í peningamarkaðssjóði til að draga úr afföllum af áhættufjárfestingum, hafa nú þegar leitt af sér ójöfnuð. Þau úrræði gögnuðust fyrst og fremst fjármagnseigendum en gerðu ekkert til að rétta hlut þeirra sem eiga bara fasteignir og skuldir, sem er aðallega ungt fólk og fjölskyldur sem hafa nýlega fjárfest í sínu fyrsta húsnæði. Endurskoðun húsnæðislána í einhverri mynd verður frekar til að leiðrétta þann ójöfnuð en auka við hann. Svo má auðvitað alltaf rífast um hvernig best sé að útfæra þetta, en aðalatriðið í mínum huga er að tryggja að fólk verði ekki gjaldþrota fyrir það eitt að hafa reynt að setja þak yfir fjölskylduna sína.

Guðmundur Ásgeirsson, 26.8.2009 kl. 12:23

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ég er sammála þér í þessu Guðmundur, stjórnvöld, þau sem voru við hrun og þau sem eru nú við völd, hafa fyrst og fremst staðið vörð um fjármagnseigendur, lánastofnanir og útrásarvíkingana.  Það sorglega er að almenningur sem ekkert hefur til saka unnið, nema það að reyna að koma þaki yfir höfuðið, eða leyfa sér eitt og annað sem þótti eðlilegt þar sem "góðærið" átti að koma öllum til góða og farið eftir ráðleggingum bankamanna og stjórnvalda, er nú látið axla ábyrgð á öllu klabbinu.  Það, fyrir það fyrsta, er óréttlátt.  Á meðan eru "auðmennirnir", sem komu himinháum fjármunum undan, að fela slóðina og troða seðlum í holur sem þeir einir vita af.

En ég fer ekki ofan af því að það eru stjórnvöld sem eiga að ríða á vaðið og taka ákvarðanir um leiðréttingu á höfuðstól lána, ég segi hér leiðréttingu en ekki niðurfærslu eða afskriftir því að það gefur réttari mynd af raunveruleikanum.

Tómas Ibsen Halldórsson, 26.8.2009 kl. 15:49

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hárrétt, það ætlast held ég enginn til að fá neitt gefins, heldur bara að fá ójafnvægið leiðrétt.

Guðmundur Ásgeirsson, 26.8.2009 kl. 16:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 161161

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband