Spor í rétta átt hjá VG

Vinstri grænir eru farnir að átta sig á því að það er lífsnauðsyn að lækka höfuðstól lána.  Hugmyndir þeirra ganga þó of skammt í þeim efnum, þeir vilja halda íbúðarlánum í toppi, eða í sömu upphæð og verðgildi fasteigna eru, hverjar svo sem þær upphæðir eru.

Það verður erfitt að átta sig á hvert raunvirði fasteigna er og mun ekki koma í ljós fyrr en fasteignamarkaðurinn lifnar við.  Fasteignamarkaðurinn mun ekki lifna við fyrr en hjól efnahagslífsins fara að snúast á ný.  Fasteignamarkaðurinn mun heldur ekki lifna við ef fasteignir eru veðsettar í topp.  Fólk sem þarf að skipta um húsnæði, vegna stækkandi fjölskyldu eða til að minnka við sig og er með fasteign sem er toppveðsett getur ekki hreyft sig, það er fjötrað í "sinni" íbúð.

Þetta eru spor í rétta átt Vinstri grænir, en meira þarf ef duga skal.

 


mbl.is Málefnahópur VG vill lækka höfuðstól lána
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

það eru kanski margar hliðar á málunum þessa daga sem aðra! það þarf að hugsa um allar hliðar  á málunum og kanski kominn tími til. það hefur vantað mikið hingað til í stjórnmálum Íslands.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 8.5.2009 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 779
  • Frá upphafi: 162066

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 493
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband