Virðingarleysi Pírata í öryggismálum landsmana opinberast í yfirlýsingu varaþingmanns þeirra.

Andri Þór Sturluson, varaþingmaður Pírata, sýnir okkur svo ekki verði um villst hversu hættulegt það er að hafa Pírata á Alþingi Íslendinga.  Ekkert er þeim heilagt, ekki einu sinni öryggi borgarana.

Að hvetja fólk til að teppa neyðarlínuna opinberar virðingarleysi þeirra við þá sem þurfa nauðsynlega á aðstoð að halda s.s. vegna slys, átaka, annarskonar hættu sem fólk lendir í.

Ég vona að það komi ekki til að Andri Þór þurfi að setjast á þing, við þurfum ekki á þjónustu fólks með svona hugsunarhátt að halda.

 


mbl.is Varaþingmaður vill teppa neyðarlínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég tek hjartannlega undir þetta með þér, Tómas, ætlaði einmitt að blogga um þetta, en maður kemst ekki yfir allt nógu hratt.

Þetta er megnasta ábyrgðarleysi af þessum unga manni, sem gæti með þessu komið í veg fyrir, að neyðarhjálp vegna slysa berist nógu hratt; mannslíf geta verið í húfi.

Enginn fylgi fordæmi þessa aula, sem á ekkert erindi á Alþingi.

Jón Valur Jensson, 20.6.2017 kl. 14:18

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Nú hefur umræddur þingmaður komið fram og sagst hafa sett þetta fram í gríni. Svona "grín" getur orðið dýrkeypt. Vestur í Bandaríkjunum hafa menn verið að setja fram, í "gríni" leikþætti sem sína aftökur á forseta þeirra. Þetta "grín" hefur kostað skotárás á Bandaríska þingmenn og liggur einn frammámaður Repúblikana særður eftir slíkt "grín" en ýmsir andstæðingar Repúblikana hafa fagnað, meira að segja fólk framalega í flokki Demókrata.

Fólk sem ekki hefur vit á að greina rétt frá röngu ætti ekki að sitja á þingi. Slíkt fólk ætlast sem sagt ekki til þess að tekið sé mark á því sem það segir og er því ekki trúverðugt.

Tómas Ibsen Halldórsson, 20.6.2017 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband