Er það vegna þessa að það er graftarkýli eða fílapensill sem er í móðurlífi að kona fer í fóstureyðingu eða er það vegna þess að þar er lifandi mannvera sem er óvelkomin?

Það er sannanlega verðugt og þarft verk að upplýsa fólk um alvarleika þess að myrða börn, hvort heldur þau eru fædd eða ófædd. Ein ástæða þess að Guð vildi útrýma Kanaanítum á sínum tíma var sú staðreynd að þeir fórnfærðu börnum sínum á altari Móloks. Í dag er börnum fórnað á altari félagshyggjunnar og fólki finnst það ekkert tiltöku mál. Það er eins og fólk haldi að fóstur [einstaklingur á fyrsta þroskaskeiði lífsins] sé eins og einhverskonar graftarkýli eða fílapensill sem má kreist út. Fólk virðist blint á þá staðreynd að um einstakling, persónu með tilfinningar, með sitt eigið hjarta, lungu, heila og sínar eigin æðar og blóð sem er annað og jafnvel annar blóðflokkur en blóð móðurinnar.

Það er sorglegt til þess að vita að læknar, vísindamenn, stjórnmálamenn og margir aðrir líti á einstaklinginn í móðurlífi eins og einhvern aðskotahlut sem megi losa sig við. Þá er vert að minnast þess að þetta sama fólk var eitt sinn í þeirri stöðu að vera slíkur aðskotahlutur, en það fékk tækifæri til lífs og er nú í þeirri stöðu að ákveða að aðrir einstaklingar skuli ekki fá þann sama rétt til lífs.

Lífið er okkur gefið af Guði og við þurfum að varðveita lífið og vernda líf lítilmagnans.

Eigi fólk í erfiðleikum og sjá ekki fram á að geta framfleytt nýjum einstaklingi, þá má minna á að til eru úrræði sem eru betri en að eyða lífi.

Veljum lífið. Jesús sagði: "Ég kom til að gefa yður líf, líf í fullri gnægð". Mætti okkur auðnast að umfaðma sérhvert það líf sem Guð gefur.

 


mbl.is Sjáðu tvíbura „slást“ í móðurkviði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 161294

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband