Hvað er rétt í fréttaflutningi um forsetabaráttuna í Bandaríkjunum?

Án þess að taka afstöðu til Trump, það eru vafalaust margir gallar í fari hans, þá verð ég þó að segja að "yfirburðir" Clinton eru verulega ýktir af "main stream media" helstu fjölmiðlum vestanhafs, en þeir eru allir á bandi Clinton, auk þess sem þeir eru flestir í eigu sömu aðila.

Óheiðarleiki Clinton og spillingin sem hefur umlykið hana eru að opinberast hvert af öðru. Lygar hennar eru að koma henni sjálfri í koll. Sú staðreynd að hún sem utanríkisráðherra seldi erlendum þjóðhöfðingjum, stjórnmálamönnum og öðrum "mektar"mönnum aðgang að Bandarísku stjórnkerfi og greiddi þeim þannig leið í gegnum kerfið og liðkaði fyrir um "viðskipti" fyrir mútur og hagnaðist þannig um hundruð þúsunda ef ekki milljarða dollara.

Ekki fjalla helstu fjölmiðlarnir vestan hafs heldur um veikindi hennar, veikindi sem hafa verið að hrjá hana undanfarna mánuði og geta torveldað henni í starfi sem forseta eins öflugasta ríkis veraldar.

Fjölmiðlanir vestra eru mjög uppteknir af neikvæðum fréttum af Trump og gera ýmislegt til að sverta hann, á sama tíma og þeir hlífa Clinton.

Ýmsar nýjar skoðanakannanir sýna að Trump hafi yfirhöndina.

Myndbönd af fundum þeirra sýna yfirgnæfandi fleiri þátttakendur á fundum hjá Trump en hjá Clinton.

Hvað er rétt í fréttaflutningi um forsetabaráttuna í Bandaríkjunum? Svarið er að fjölmiðlar eru hlutdrægir, alveg eins og hér á landi, þeim er ekki treystandi til að segja satt og rétt frá.

 

 


mbl.is Veikleikar Trump birtast í nýrri könnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hillary Clinton reynir að skjóta sendiboðann og beina þannig athyglinni frá boðskapnum sem hann hafði að flytja.

Ég held að Hillary Clinton ætti að hafa áhyggjur af innihaldi þeirra gagna sem opinberuð hafa verið fremur en hverjir það voru sem komust yfir þau gögn. Gögnin sem opinberuð hafa verið sýna hversu spillt hún er og ætti Bandaríska þjóðin að hafa verulegar áhyggjur komist hún til valda sem forseti þeirra.

Hillary Clinton reynir að skjóta sendiboðann og beina þannig athyglinni frá boðskapnum sem hann hafði að flytja.


mbl.is Vekur alvarlegar spurningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. september 2016

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 34
  • Sl. sólarhring: 196
  • Sl. viku: 743
  • Frá upphafi: 162019

Annað

  • Innlit í dag: 23
  • Innlit sl. viku: 471
  • Gestir í dag: 23
  • IP-tölur í dag: 23

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband