Frank Stephens kom fyrir nefnd á vegum Bandaríska þingsins og hafði þetta að segja.

"My life is worth living" sagði Frank Stephens.

Sjá og hlustið á ræðu hans á myndbandinu hér fyrir neðan.


Tvískinnungur stjórnmálanna.

"...og vinna fyr­ir þá sem minnst mega sín í sam­fé­lag­inu" segir Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar. 

Hvorki Samfylkingin né aðrir flokkar hafa tekið málstað þeirra sem minnst mega sín í samfélaginu.  Ófædd börn eru afgangsstærð hjá stjórnmálaflokkunum og ekki litið til þeirra sem einstaklinga eða mannvera yfir höfuð. 

Það er ljótur blettur á íslensku þjóðfélagi sem vill láta kallast "velferðar" þjóðfélag að börnum er fórnað á altari félagshyggjunnar án þess að nokkur reisi hönd þeim til varnar. 

Kirkjan, er hljóð, Alþingi er hljótt, heilbrigðisstéttin er hljóð, þeir sem kalla eftir réttlæti, sanngirni og heiðarleika eru hljóðir.

Þjóðfélag sem þannig fer með væntanlega borgara sína á ekkert gott skilið, dómur Guðs bíður slíkrar þjóðar. 

Guð fyrirgef okkur þessa alvarlegu synd.

 


mbl.is Stjórnarandstaðan fundaði í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Léleg kjörsókn!!!

Ef miðað er við kjörsókn víða í Bandaríkjunum við forsetakosningarnar í fyrra, þá er kjörsókn hér á landi verulega léleg.  Í nokkrum borgum suður Kaliforníu, þar sem Demókratar eru öflugir, fór kjörsókn vel yfir 100%.  Í San Diago fór kjörsókn t.d. í 135%, geri aðrir betur. Í Los Angeles, San Francisco, San Jose og víðar var kjörsókn yfir 100%.  Þá var kjörsókn á nokkrum stöðum í Flórída meiri en fjöldi þeirra sem á kjörskrá voru.

Ekki nema vona að Hillary Clinton hafi fengið fleiri atkvæði en Donald Trump. 


mbl.is Kjörsókn vænkast um 2% milli ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV við sama heygarðshornið

Ég tek undir yfirlýsingu Alþýðufylkingarinnar, það er óliðandi hvernig RÚV kemur fram við þá sem þeir telja að þeir getið traðkað á. Nýtt þing þarf að taka á þessari stofnun með festu.

 


mbl.is Yfirlýsing Alþýðufylkingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hillary Clinton telur vandræði sín öllum öðrum að kenna en henni sjálfri

Í bók sinni What Happened finnur Hillary sök á tapi sínu fyrir Donald Trump hjá öllum öðrum en sjálfri sér.

Í meir en ár hafa Demókratar ásakað Trump og samstarfsmenn hans um að hafa verið í tengslum við Rússnesk stjórnvöld vegna aðstoðar Rússa við kjör Trumps. Þrátt fyrir ítalegar rannsóknir og sérstakan saksóknara með fjölda lögfræðinga sem voru stuðningsmenn Clintons hafa þeir ekkert fundið, en gera má ráð fyrir því að eitthvað verði búið til til að koma í veg fyrir sneipuför Demókrata í garð Trumps.

Þegar kemur að ásökunum Hillary í garð allra annara en sjálfrar sín, þá fer hún villu vegar. Hún ein á sök á því hvernig fór fyrir henni. Nægir þar að minna á feril hennar sem utanríkisráðherra í tíð Obama á fyrra kjörtímabili hans. Þar fór hún offari á mörgum sviðum, braut lög, en enginn þorir að ákæra hana, hún virðist ósnertanleg. En eitt er víst að konan er gerspillt.


mbl.is Erfiðleikar hjá Clinton-hjónunum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brotlegir hælisleitendur

Af hverju eru brotlegir hælisleitendur ekki umsvifalaust sendir til baka þaðan sem þeir komu????? Menn eiga ekki að þurfa að velkjast í vafa um að þeir sem hingað koma og brjóta af sér t.d. með því að laumast um borð í skip á leið til Ameríku hafa ekki neinn áhuga á að vera hér. En skipafélögin sem um ræðir, í þessu tilfelli Eimskip, gætu lent í stórkostlegum vandræðum gagnvart Amerískum yfirvöldum komi laumufarþegar með þeim vestur um haf.

Þessir hælisleitendur hljóta að vera búnir að fyrirgera rétti sínum.

Það sama hlýtur að vera er varðar önnur hegningarlagabrot.


mbl.is „Laumufarþegar“ dæmdir fyrir húsbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrópandi þögn ESB elítunnar er alla að æra

Innan Evrópusambandsins er lítil þolinmæði fyrir lýðræði. Spænsk stjórnvöld gera allt sem í þeirra valdi er til að koma í veg fyrir að íbúar Katalóníu tjái vilja sinn gagnvart veru þeirra í Spænska "lýðveldinu". Lögreglu er beint gegn lýðræðislegum rétti fólks til að tjá vilja sinn og þeim sem vinna að téðum kosningum hótað öllu illu. Á sama tíma heyrist ekki orð frá ESB elítunni, ekki eitt aukatekið orð. ESB lætur stjórnvöld í Madrid um skítaverkin og lýsir velþóknun sinni með hinni hrópandi þögn sem frá Brussel kemur.

Eru ESB-sinnar á Íslandi sáttir við "lýðræðisást" ESB????


mbl.is 465 særðir eftir átök í Katalóníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Tómas Ibsen Halldórsson

Höfundur

Tómas Ibsen Halldórsson
Tómas Ibsen Halldórsson
Er viðurkenndur bókari, hef áhuga á þjóðmálum, trúmálum og ýmsu öðru
Okt. 2017
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • A Syrian child

Nota bene

Tedros

https://rumble.com/vr8g4m-w.h.o.-dr.-tedros-slips-up-and-admits-some-countries-using-booster-shots-to.html

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 124
  • Sl. sólarhring: 134
  • Sl. viku: 634
  • Frá upphafi: 161900

Annað

  • Innlit í dag: 69
  • Innlit sl. viku: 413
  • Gestir í dag: 64
  • IP-tölur í dag: 64

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband